Eignamiðlun kynnir:
Afar björt og rúmgóð 4-5 herbergja íbúð á 2. hæð við Kelduland 3 í Fossvogi. Stórar stofur og fjögur svefnherbergi skv. teikningu. Í dag eru þau þrjú en auðvelt er að breyta aftur til fyrra horfs. Rúmgott búr er í dag nýtt sem fjórða herbergið. Stórar suðursvalir og fallegt útsýni. Húsið hefur fengið gott viðhald en nýlega voru allir gluggar hússins endurnýjaðir. Járn á þaki var endurnýjað fyrir um 12 árum. Stigagangur hefur nýlega verið tekinn í gegn, málaður og skipt um teppi. Næg bílastæði eru framan við hús. Frábært staðsetning í Fossvoginum þar sem stutt er í skóla og íþróttasvæði. Nánari upplýsingar veitir: Lilja s.
649-3868 eða
lilja@eignamidlun.is**Sækja söluyfirlit**Yfirlýsing húsfélagsEignin er skráð 121,5 fm og skiptist í forstofu, stofu, borðstofu, eldhús, búr/þvottahús, þrjú svefnherbergi (áður fjögur) og baðherbergi. Íbúðinni fylgir 2,3 fm geymsla í kjallara. Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
**Sækja söluyfirlit**
Nánari lýsing:Forstofa: Rúmgóð með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Eldhús: Snyrtileg hvít innrétting með góðu skápaplássi og ofni í vinnuhæð. Góður borðkrókur fyrir enda eldhús sem er opið við stofu.
Búr: Inn af eldhús er mjög gott búr/þvottahús með góðum glugga. Í dag er það nýtt sem svefnherbergi.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóðar og bjartar stofur með útgengi á sólríkar suðursvalir sem liggja meðfram allir íbúðinni.
Svefnherbergisgangur: Gott skápapláss er á svefnherbergisgangi.
Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf með salerni, innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Góður gluggi.
Herbergi: Mjög rúmgott með parketi á gólfi. Þetta herbergi var áður tvö herbergi og væri mjög auðvelt að breyta því aftur til fyrra horfs.
Herbergi: Ágætt herbergi með parketi á gólfi.
Geymsla: 2,3 fm geymsla fylgir íbúðinni og er staðsett í kjallara.
Þvottahús: Aðstaða er fyrir þvottahús í búri inn af eldhúsi en sameiginlegt þvottahús í kjallara.
Sameign og garður: Sameignin er mjög snyrtileg og er nýlega búið að mála og skipta um teppi.
Um er að ræða frábæra fjölskyldueign á þessum vinsæla stað í Fossvoginum. Skóli og íþróttamannvirki eru í göngufæri og stutt í stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veitir: Lilja Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali í s.
649-3868 eða lilja@eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook