** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 2-3ja herbergja íbúð með risi á 3.hæð (efstuhæð) við Flétturima 31. Eignin er skráð 66,8 m2 en auk þess er milliloft íbúðar (ca. 30 m2) sem er opið rými en er ekki inn í skráðum fermetrum. Eignin skiptist í svefnherbergi, forstofu, baðherbergi, eldhús, stofu/borðstofu, ris og geymslu í sameign. Íbúðin er með aukinni lofthæð og aukarými sem nýtist vel sem auka herbergi eða skrifstofa. Sameignilegt þvottahús er á hæðinni. Stutt er í alla þjónustu, skóla, leikskóla, íþróttar og útivistarsvæði.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing: Gengið inn í íbúðina frá tveggja íbúða inngangi frá svölum, flísar á holi. Innaf forstofu er
sameignlegt þvottaherbergiEldhús er með hvítri innréttingi og góðum borðkrók. Í innréttingu er ofn, helluborð og vifta. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa er með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í vesturátt. Mikil lofthæð og er aðgengi í stofu að risi sem er hægt að nýta sem auka herbergi, skrifstofu eða sjónvarpshol.
Svefnherbergi er rúmgott með harðparketi á gólfi og fataskáp, aukin lofthæð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi. Á baði er innrétting, baððkar og salerni.
Sérgeymsla er í sameign. Er skráð 6,7 m2.
Þvottaherbergi er á hæðinni og er sameiginlegt fyrir fjórar íbúðir.
Sameiginleg hjólageymsla er í skúr sem stendur á lóð fyrir framan stigagang.
Bílastæði: Næg bílastæði eru á lóðinni. Annars vegar á vestur hlið lóðar og á norð-austur horni lóðar.
Skv. upplýsingum frá seljanda og húsfélaginu var farið í eftirfarandi framkvæmdir:Árið 2019: Húsið málað og sprunguviðgert. Smærri þakviðgerð, einnig var skipt um lélegar rennur.
Árið 2020: Nýtt parket, nýr fataskápur á gangi og nýr gluggi með opnanlegu fagi. Stétt löguð og set í snjóbræðsla. Þakviðgerð, skipt um glugga í risi. Lofthreinsistokkur hreinsaður.
Árið 2021: Brunnur við enda húss lagaður.
Verð kr. 59.900.000,-