Kasa fasteignir 461-2010.
Hríseyjargata 22 - Fallegt og mikið uppgert 114,6 fm 4 herbergja einbýlishús með sólpalli og heitum potti á góðum stað á Eyrinni.
Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og geymslu.
Inn um aðaldyrnar á suðurhlið hússins er gengið inn í hol eða gang sem liggur í gegnum húsið.
Gengið er inn um bakdyrainngang af sólpalli. Þar er rúmgóð forstofa með opnum fatahengjum og fataskáp.
Úr forstofu er gengið inn í þvottahús/geymslu. Þar er innrétting með vaski, skápar og opnar hillur. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð og í rýminu er opnanlegur gluggi.
Stofa og borðstofa eru í opnu og björtu rými með kork á gólfi.
Eldhús var uppgert árið 2023. Þar er falleg, grá innrétting með miklu skúffu- og skápaplássi, innbyggðri uppþvottavél og örbylgjuofni, bakaraofni, helluborði og háf. Þar er líka nokkuð rúmgóður borðkrókur með bólstruðum bekk sem fylgir eigninni við sölu. Í einu horni eldhússins er lítið búr með góðu hilluplássi.
Baðherbergi var gert upp árið 2016. Þar er gólfhiti og flísar á gólfi, en fibo trespo klæðning á veggjum. Dökk innrétting með vaski, tveir háir skápar, salerni, innangeng sturta með sturtugleri, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergið er mjög bjart og rúmgott með gluggum til þriggja átta. Búið er að jafna barnaherbergin að stærð frá upprunalegum teikningum og þangað voru lagðar nýjar ofnalagnir árið 2017. Í báðum barnaherbergjum eru fataskápar.
Sólpallur er rúmgóður og afgirtur með háum skjólvegg. Þar er hitaveitu heitur pottur og 15 fm einangraður geymsluskúr sem þó fylgir ekki með eigninni við sölu nema um það sé samið.
-Korkur er á öllum gólfum nema á baðherbergi
-Öll loft eru klædd með loftaþiljum
-Skipt var um þak á húsinu árið 2015
-Innihurðar eru nýlegar
-Búið er að endurnýja neysluvatnslagnir
-Búið er að endurnýja allt rafmagn innan eignarinnar og rafmagnstöflu
-Inntak á heitu og köldu vatni var endurnýjað árið 2021
-Gangur og stofa voru klædd með spónaplötum árið 2016
-Geymsluloft er yfir stórum hluta hússins
-Við norður hlið hússins er malarplan sem nýtist sem bílastæði og þaðan er innangengt inná sólpallinn
-Góð staðsetning á Eyrinni, rétt við skóla og í göngufæri við miðbæinn, verslanir og þjónustu
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.