Fasteignaleitin
Skráð 12. nóv. 2025

Sunnubraut 46

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
335.6 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
Tilboð
Fasteignamat
197.750.000 kr.
Brunabótamat
144.500.000 kr.
JG
Jason Guðmundsson
hdl og lgf kt 250470-5929 jason@miklaborgis
Byggt 1965
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2065497
Landnúmer
116145
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer íbúðar
010101
Vatnslagnir
Sjá upplýsingablað seljanda
Raflagnir
Endurnýjaðar
Svalir
1
Lóð
100.00
Upphitun
Gólfhiti/Ofnakerfi
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Miklaborg og Bára Gunnlaugsdóttir fasteignasali kynna Sunnubraut 46 í Kópavogi – einstakt heimili sem kemur afar sjaldan á markað.

Húsið stendur hátt á fallegri hornlóð og nýtur tilkomumikils útsýnis. Það var teiknað af Guðmundi Þór Pálssyni, einum áhrifamesta arkitekt sjöunda áratugarins, sem lét eftir sig fjölda opinberra bygginga og merkilegra einbýlishúsa.

Sunnubraut 46 ber greinileg einkenni hans: skörp form, háir skjólveggir, stórir gluggar og hugvitssamlegt flæði birtu. Húsið er sterkt í nærveru, karakter og stíl – raunverulegt listaverk modernismans.


Bókið einkaskoðun hjá Báru fasteignasala í síma 899-8809 eða sendið póst á bara@miklaborg.is


Húsið stallast fallega innbyrðis, sem gerir flæði á milli eldhúss, borðstofu og þvottahúss mjúkt og átakalaust. Í takt við tímann þegar húsið var byggt voru mörg svefnherbergi á fyrstu hæð, en núverandi eigendur hafa breytt þessu og skapað stærra alrými.

Miklar endurbætur hafa verið gerðar, þó ávallt í takt við karakter og tíðaranda hússins. 

Komið er inn í mjög rúmgott anddyri en gólfhiti er í öllum gólfum á neðri og efri hæð, utan hjónaherbergis sem er með hefðbundnum ofnum.

Neðri hæðin er með heilsteyptum terrazo-flísum sem slípaðar eru á staðnum og settar í álramma, en á efri hæðinni er náttúrusteinn ásamt gegnheilu parketi.

Neðri hæðin hýsti áður fimm svefnherbergi, en þrjú þeirra hafa verið sameinuð í rúmgott alrýmiEitt þeirra er nýtt sem skrifstofa í dag. Einnig er þar baðherbergi með sturtu, miklir forstofuskápar ásamt geymslum og innangengt er í bílskúrinn. 

Fallegur stigi leiðir upp á efri hæðina þar sem stórar og bjartar stofur taka við. Í stofunni er glæsilegur arinn, sem er miðpunktur rýmisins, fullkominn til að skapa hlýleika. Útgengt er úr stofunni á stórar útsýnissvalir sem liggja meðfram húsinu að framan, þar sem einstakt útsýni yfir voginn og til Reykjaness nýtur sín til fulls. Þær bjóða upp á fullkomið rými til að njóta bæði dagsins og náttúrunnar, hvort sem það er á miðjum degi eða á kvöldin með sólarlaginu. Einnig er á austurhlið hússins notaleg verönd, þar sem morgunsólin baðar svæðið. Það er tilvalinn staður fyrir kaffibolla og að byrja daginn.

Allir gluggar hússins hafa verið endurnýjaðir með vönduðum hætti, sem undirstrikar vel viðhaldið á húsinu. Bulthaup eldhúsinnrétting með Gaggenau og Sub-Zero tækjum prýðir eldhúsið. Þar er mikið skápapláss og beint útgengi í bakgarð, þar sem gengið er upp á verönd. Allar stéttar utan húss og heimreið eru upphitaðar, sem auðveldar alla umhirðu á köldustu dögum ársins.

Húsið hefur verið endurbætt með virðingu fyrir upprunalegum stíl þess og er í góðu ástandi. Að auki er rúmgóður garður umhverfis húsið með stæði fyrir nokkra bíla. Göngu- og hlaupaleiðir um Kársnesið gera þetta svæði bæði eftirsóknarvert og fjölskylduvænt.


Einstök eign sem á sér fáa líka. 


Nánari upplýsingar veitir Bára Gunnlaugsdóttir fasteignasali í síma 899-8809 eða bara@miklaborg.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háalind 29
Á einni hæð
Skoða eignina Háalind 29
Háalind 29
201 Kópavogur
145.9 m2
Raðhús
312
945 þ.kr./m2
137.900.000 kr.
Skoða eignina Melás 7
Bílskúr
Skoða eignina Melás 7
Melás 7
260 Reykjanesbær
305.8 m2
Einbýlishús
7
360 þ.kr./m2
110.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 29
Opið hús:23. ágúst kl 14:00-14:30
251024_474_Vorbraut_TÓ arkitektar_01 FACADES.jpg
Skoða eignina Vorbraut 29
Vorbraut 29
210 Garðabær
269.3 m2
Raðhús
635
850 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 37
Opið hús:23. ágúst kl 14:00-14:30
251024_474_Vorbraut_T_ arkitektar_03 INT.jpg
Skoða eignina Vorbraut 37
Vorbraut 37
210 Garðabær
252.3 m2
Raðhús
634
852 þ.kr./m2
215.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin