Fasteignaleitin
Skráð 6. okt. 2026

Miklabraut 44

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
148.8 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
99.500.000 kr.
Fermetraverð
668.683 kr./m2
Brunabótamat
74.900.000 kr.
Byggt 1940
Sérinng.
Fasteignanúmer
20297962
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Borg fasteignasala kynnir til sölu 148 fermetra hæð og ris við Miklubraut í Reykjavík. Íbúðin skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús, baðherbergi, hjónaherbergi, tvö svefnherbergi/ eru á teikningu eitt herbergi. Í risi er alrými, baðherbergi og eldhúskrókur með mikla möguleika. 
Falleg eign með verslun og þjónustu í göngufæri.

Nánari lýsing:
Komið er inn á flísalagt anddyri. Úr anddyri er gengið teppalagðan stiga uppá 2. hæð. Komið er inn á parketlagt hol með skrifstofuaðstöðu. Stofa og borðstofa eru parketlagðar með harðparketi. Falleg hurð er á milli stofu og borðstofu. Eldhús er parketlagt með hvítlakkaðri innréttingu og gaseldavél með stáláferð. Hjónaherbergi er rúmgott með harðparketi og fataskápum.  Barnaherbergin eru tvö, bæði með harðparketi/voru áður eitt herbergi. Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir með innréttingu og sturtuklefa. Í risi er parketlagt alrými með loftgluggum. Eldhús aðstaða er í risi. 
Baðherbergi er í risi með flísum á gólfi, innréttingu og baðkari.  Falleg eign með mikla möguleika á nýtingu. Sameiginlegt þvottahús er í sameign í kjallar og sérgeymslur. Eignin er skráð eftirfarandi íbúð á 2.hæð 114,4 fm merkt 0201, stigahús á 1. hæð 4,3 fm merkt 0102, 4,3 sérgeymsla í kjallara merkt 0003, 0,9 fm sérgeymslu undir úti tröppum merkt 0006 og 24.9 fm geymsla í risi merkt 0301, samtals 148,8.

Yfirlit yfir framkvæmdir frá eiganda. 
Farið yfir þak og málað 2025.
Skólp og dren skoðað fyrir 8 árum.

Nánari upplýsingar veitir Brandur Gunnarsson löggiltur fasteignasali-löggiltur leigumiðlari  í síma 897-1401 brandur@fastborg.is  hjá BORG fasteignasölu.
Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði







 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Háaleitisbraut 22
Bílskúr
Efsta hæð
Hleðslustöð
Opið hús:11. okt. kl 15:00-15:30
Háaleitisbraut 22
108 Reykjavík
136,8 m2
Fjölbýlishús
514
619 þ.kr./m2
84.700.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 45
Skoða eignina Hringbraut 45
Hringbraut 45
101 Reykjavík
91,5 m2
Fjölbýlishús
412
716 þ.kr./m2
65.500.000 kr.
Skoða eignina Elsugata 13
Bílskúr
Á einni hæð
Opið hús:11. okt. kl 14:00-14:30
Skoða eignina Elsugata 13
Elsugata 13
815 Þorlákshöfn
140 m2
Raðhús
413
606 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Ljósheimar 12
Skoða eignina Ljósheimar 12
Ljósheimar 12
104 Reykjavík
99,8 m2
Fjölbýlishús
413
740 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin