** EIGNIN ER SELD EN ÞÓ Í FJÁRMÖGNUN **Mikill áhugi var fyrir eigninni og er ég því með nokkra aðila á skrá hjá mér sem eru að leita að samskonar eign og þá einna helst með auka útleigu einingu. Ef þú ert í söluhugleiðingum og ert með svipaða eign á þessu svæði vertu þá í sambandi við mig í síma 862-1914 eða á netfangið thordis@remax.is
RE/MAX ásamt Þórdísi Björk Davíðsdóttur löggiltum fasteignasala kynna:Bjarta og rúmgóða 6-7 herbergja endaíbúð á efstu hæð með risi og snyritilegu 15 fm útleiguherbrgi í kjallara í Vogahverfinu.
Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð síðustu ár t.a.m eldhús, baðherbergi og gólfefni. Risið var allt opnað og sett í eitt opið rými og parketlagt des '24-jan'25.
Þvottahús er innan íbúðar. Eignin er sérlega vel staðsett þar sem er stutt í allar helstu þjónustu, leik-, grunn- og menntaskóla. Einnig er stutt í fallegar gönguleiðir í Laugardalinn.
Samkvæmt skráningu hjá HMS er eignin skráð samtals 148,0 fm sem skiptist eftirfarandi:
Íbúðarrými á hæð er 103,3 fm - ris-hæðin er 15,0 fm - íbúðarherbergi í kjallara er 15,2 fm og geymsla í kjallara er 14,5 fm. SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDIS SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D 3D - ER = OPIÐ HÚS ÞEGAR ÞÉR HENTAR Ekki þarf sérstakt forrit til að skoða eignina í 3D.- Þvottahús innan íbúðar
- Íbúðarherbergi í kjallara hægt að leigja út og fá leigutekjur
- Eldhús og baðherbergi endurnýjað af fyrri eigendum
- Harðparket á íbúðarhæð endurnýjað 2024
- Harðparket á rishæð endurnýjað 2025
- Íbúðin máluð 2024
- Útsýni og tvennar svalir
- 2019 voru lagnir undir húsinu endurnýjaðar
- 2015 hús málað að utan
- 2024-25 skipt um ofna í stofu og borðstofuÁ neðri hæð íbúðar eru: þrjú svefnherbergi, miðrými/hol, baðherbergi, stofa, borðstofa, eldhús og þvottahús.
Á efri hæð íbúðar er: opið rými með þakgluggum og hægt að nýta sem herbergi eða stofu.
Nánari lýsing eignar: Komið er inn í miðrými/hol íbúðar og er fataskápur og harðparket á gólfi.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, með upphengdu salerni, baðkari með sturtugleri, handklæðaofni, góðri innréttingu og glugga til loftunar.
Herbergi neðri hæðar eru í dag tvö en á upprunalegum teikningum eiga þau að vera þrjú.
Hjónaherbergið í dag er samansett úr tveimur herbergjum þar sem búið er að taka niður vegg og loka hurðargati. Herbergið er mjög rúmgott, með glugga til norðurs og með harðparket á gólfi.
Herbergið innst á ganginum er upprunalega hjónaherbergið og er rúmgott með föstum fataskápum, gluggum norðurs og austurs, útgengi á austur svalir og harðparketi á gólfi.
Stofan, borðstofan og eldhúsið eru í opnu björtu rými með harðparketi á gólfi í stofu og borðstofu, stórum gluggum bæði til austurs og suðurs og útgengt er á rúmgóðar suður svalir úr borðstofunni.
Eldhúsinnréttingin er L-laga með góðu skáparými, flísum upp á vegg, veggföstum bakaraofni, gas helluborði, innbyggðri uppþvottavél og ísskáp. Innaf eldhúsi er þvottahús með góðu rými fyrir bæði þvottavél og þurrkara, vinnuborð, veggfastar hillur og gluggi til loftunar. Flísar eru bæði á eldhúsi og þvottahúsi.
Gengið er úr miðrými/holi upp stiga í risið.Risið var áður hólfað niður í geymslur og lítið herbergi. Seljendur eru nýlega búin að taka alla veggi niður og leggja harðparket yfir alla rishæðina sem nýtist því mun betur. Tveir opnanlegir þakglugar eru í risinu.
Ekki er komið handriði eða veggur við stigaopið en það er í höndum kaupenda að gera það.
Íbúðinni fylgir rúmgott
íbúaðarherbergi í sameign sem er
15,2 fm sem hefur verið nýtt til útleigu. Herbergin í kjallaranum hafa aðgang að tveimur baðherbergjum með sturtu og er þvottavél inná öðru þeirra.
Í sameign er
sérgeymsla íbúðar 14,5 fm og sameiginleg
vagna- og hjólageymslaGarður/ lóð er sameiginlegur Álfheimum 68-72 og er ágætis leiksvæði sunnan megin við húsið en steypt bílastæði norðan- og vestan megin.
Um er að ræða sérlega vel staðsetta eign í barnvænu hverfi þar sem stutt er í leik-, grunn- og menntaskóla, en einnig er stutt í fallegar gönguleiðir í Laugardalinn og aðrar íþróttaiðkanir.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. - Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat. Heimasíða RE/MAX Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk