Fasteignaleitin
Opið hús:06. nóv. kl 16:00-16:30
Skráð 2. nóv. 2026

Rofabær 23

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
99.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
751.254 kr./m2
Brunabótamat
51.950.000 kr.
Byggt 1989
Svalir
Sérinng.
Fasteignanúmer
20449761
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali og Trausti fasteignasala kynna bjarta og fallega fjögurra herbergja íbúð við Rofabæ 23 með sérinngangi og suðursvölum á vinsælum og fjölskylduvænum stað í Árbæ.
Íbúðin er einstaklega vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, rúmgóðri stofu og þvottaaðstöðu innan íbúðar. Birt stærð eignar skv.HMS er 99,7 m².


Nánari lýsing eignarinnar:
Forstofa: Rúmgóð og björt. Flísar á gólfum Veglegir fataskápar.

Eldhús: Virkilega bjart og fallegt rými með góðri innréttingu og rúmu skápaplássi. Flísar á gólfi og á milli skápa. Aðstaða fyrir borðkrók og útgengi á suðursvalir.

Stofa: Rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengi á svalir.

Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott. Mikið skápapláss. Parket á gólfum.

Svefnherbergi II: Bjart og fallegt. Gólfsíðir gluggar. Útgengi á svalir.

Svefnherbergi III: Parketi á gólfi og fataskápur.

Baðherbergi: Baðherbergi hefur verið endurnýjað, flísalagt í hólf og gólf, með sturtuklefa, góðri hvítri innréttingu og blöndunartækjum. Tengi eru fyrir þvottavél og þurrkara.

Geymsla: Sérgeymsla í sameign. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Endurbætur: Auk endurnýjunar baðherbergis hafa parket og innihurðir nýlega verið endurnýjað, ásamt borðplötu og hluta eldhústækja.

Hér er um að ræða virkilega fallega fjölskyldueign á eftirsóttum stað þar sem stutt er í skóla, leikskóla, Bónus, Árbæjarlaug, íþróttastarf og aðra helstu þjónustu.    
Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Trausti fasteignasala
www.trausti.is

Myndir (30)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fannafold 186
Á einni hæð
Skoða eignina Fannafold 186
Fannafold 186
112 Reykjavík
100,1 m2
Parhús
312
948 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 2 (201)
Hleðslustöð
Tjarnabraut 2 (201)
260 Reykjanesbær
91,3 m2
Fjölbýlishús
413
739 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 20 íb. 105
Bílastæði
Opið hús:03. nóv. kl 16:30-17:00
Áshamar 20 íb. 105
221 Hafnarfjörður
108,4 m2
Fjölbýlishús
423
743 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Skoða eignina Áshamar 20 íb. 201
Bílastæði
Opið hús:03. nóv. kl 16:30-17:00
Áshamar 20 íb. 201
221 Hafnarfjörður
108,9 m2
Fjölbýlishús
423
739 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin