Fasteignaleitin
Skráð 9. okt. 2026

Dalsbyggð 15

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
242.2 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
219.500.000 kr.
Fermetraverð
906.276 kr./m2
Fasteignamat
158.350.000 kr.
Brunabótamat
135.650.000 kr.
ÞB
Þórhallur Biering Guðjónsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
Garður
Svalir
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2069812
Landnúmer
118306
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í lagi
Raflagnir
Í lagi
Frárennslislagnir
Í lagi
Gluggar / Gler
Í lagi
Þak
Gott
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Þórhallur Biering, fasteignasali og Betri Stofan fasteignasala kynna í einkasölu:
Sérlega fallegt, mikið endurnýjað og vel skipulagt einbýlishús. Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni og stendur á stórri, gróinni lóð á frábærum stað miðsvæðis í Garðabæ. Eignin er alls 242,2 m2, þar af er bílskúr um 50 m2 og um 30 m2 rými inn af bílskúr.

Skipulag hússins:
Miðpallur: Bjart anddyri, gestasnyrting, forstofa, stórt og bjart alrými með mikilli lofthæð, baðherbergi, þrjú svefnherbergi og fataherbergi (svefnherbergi voru áður fjögur og hægt að fjölga aftur). Gengið út á skjólsælar verandir í garði fyrir framan og aftan húsið.

Efsti pallur: Stórt eldhús, borðstofa og björt stofa með mikilli lofthæð, arni og svölum. Góður stigi milli palla.

Neðsti pallur: Þvottahús með sturtu. Bílskúr með rafmagnshurðaopnara, innkeyrsluhurð og tveggja herbergja rými/einstaklingsíbúð með „kitchenette“. Inn af bílskúr er um 30 m2 rými.

Nánari lýsing:
Komið er inn á miðpallinn í bjart anddyri með fataskápum og gestasnyrtingu. Forstofa er falleg með mikilli lofthæð en þaðan er stór ný rennihurð út í gróinn garð með nýrri timburverönd. Á vinstri hönd er svefnálma, þar sem eru þrjú svefnherbergi (hægt að breyta aftur í fjögur) og nýstandsett fallegt baðherbergi. Fataherbergi inn af hjónaherbergi. Úr forstofu er gengið upp nokkrar tröppur á efsta pall þar sem er glæsileg arinstofa og útgengt á góðar svalir. Tengt borðstofu er nýstandsett eldhúsið sem er vel skipulagt með stórri innréttingu með steinborðplötum. Öll tæki ný, þar á meðal uppþvottavél og tvöfaldur ísskápur. Þvottahús með sturtu er á neðsta palli sem og bílskúr þar sem helmingurinn er nú tveggja herbergja rými/einstaklingsíbúð með „kitchenette“. Hinn helmingur bílskúrsins er með innkeyrsluhurð með rafmagnshurðaopnara. Inn af bílskúr er um 30 m2 óskráð rými sem er ekki með fulla lofthæð. Fyrir utan er stórt upphitað bílaplan sem rúmar auðveldlega þrjá bíla. Gróinn garður er allan hringinn með steyptum kanti við götu sem rammar húsið fallega inn.
 
Viðhald og endurbætur:
Húsið hefur verið mjög mikið endurnýjað. Þak endurnýjað fyrir um 6 árum og á síðustu mánuðum hefur húsið fengið mikla endurnýjun m.a. ný rafmagnstafla- og vatnslagnir, gólfhiti lagður í hluta hússins, ofnar endurnýjaðir, gler að miklum hluta, gólfefni og innréttingar. Eldhús og baðherbergin algerlega endurnýjuð sem og þvottahús. Þá er ný stór rennihurð, nýr rafmagnshurðaopnari, nýjar timburverandir annars vegar fyrir framan húsið og hins vegar út frá forstofu sem og nýir skjólveggir fyrir neðan og ofan hús. Grunnmyndir sýna nokkurn vegin skipulag hússins eftir breytingar. 
Allar endurbætur og framkvæmdir eru ákaflega vel heppnaðar. Lóðin er 884 m2, vel gróin og staðsetning er frábær í afar snyrtilegu umhverfi. Stutt í skóla á öllum skólastigum, íþróttasvæði og þjónustu. Gróið og barnvænt hverfi. Næg bílastæði og mikill fuglasöngur.

Ath. Eignin verður aðeins sýnd í einkaskoðun.

Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða thorhallur@betristofan.is 
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
10/05/2024139.000.000 kr.141.000.000 kr.212.2 m2664.467 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (37)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsbúð 20
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Holtsbúð 20
Holtsbúð 20
210 Garðabær
255,7 m2
Einbýlishús
614
758 þ.kr./m2
193.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 41 endaraðhús
Bílskúr
Opið hús:11. okt. kl 13:00-13:30
Vorbraut 41 endaraðhús
210 Garðabær
228,3 m2
Raðhús
523
1003 þ.kr./m2
229.000.000 kr.
Skoða eignina Austurkór 87
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Austurkór 87
Austurkór 87
203 Kópavogur
250,8 m2
Einbýlishús
54
789 þ.kr./m2
198.000.000 kr.
Skoða eignina Furuvellir 26
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Furuvellir 26
Furuvellir 26
221 Hafnarfjörður
222,7 m2
Einbýlishús
423
727 þ.kr./m2
161.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin