Fasteignasalan Valhöll og Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-8905 kynna í einkasölu, Stekkjarberg 2 íbúð 301;
Fallega og rúmgóða 4ra herbergja íbúð á 3. hæð (efstu) innst í botnlanga. Þvottahús/geymsla innan íbúðar. Sérmerkt bílastæði við hús.
-Eignin er skráð skv. HMS 97 fm
-3 rúmgóð svefnherbergi
-Þvottahús/geymsla innan íbúðar
- 2018: Baðherbergi endurnýjað.
- 2018/2019: Endurnýjað parket, hurðar, skápar, tenglar, ljós, sérsniðnar gardínur frá Sólargluggatjöld.
- 2019-2020: Endurnýjaðir allir ofnar nema einn.
- 2022: Svalir flotaðar og lagt kubbaparket.
- 2019: Framkvæmdir utanhúss: Sprunguviðgert og málað. Endurnýjaðar rennur.
- 2023/24: Sett ný innŕétting í þvottahús.
Eignin skiptist í : Forstofu, gang/hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús/geymslu.
Nánari lýsing:
Forstofa: Af stigagangi er gengið inn í rúmgóða flísalagða forstofu með fataskáp, forstofa opnast inn á gang/hol og inn í borðstofurými eignarinnar.
Gangur/hol: Parketlagt opið við stofu/eldhús/gang.
Eldhús/borðstofa: Parketlagt með U-laga hvítri fallegri innréttingu. Gert er ráð fyrir uppþvottavél.
Stofa: Af borðstofu, parketlögð og björt. Gluggarnir eru stórir. Útgengi á skjólgóðar útsýnissvalir.
3 svefnherbergi: Parketlögð. Mjög rúmgóð með skápum.
Baðherbergi: Flísalagt á gólfi og veggjum, hiti í gólfi, vaskinnrétting, upphengt salerni og "walk in" sturta.
Þvottahús/geymsla: Innan íbúðar. Flísalagt. Með hvítri innréttingu fyrir vélar og hillum og borðplássi.
Sameiginleg geymsla: Innan stigagangs í sameign, sér hilla þar.
Hjóla og vagnageymsla: Sameiginleg með aðgengi að utan til hliðar við inngang í húsið.
Sérmerkt bílastæði fylgir eigninni stutt frá inngangi hússins.
Stigagangur er snyrtilegur og vel um gengin.
Lóð: Lóðin er sameiginleg.
Eignin er staðsett innst í botnlanga þar sem stutt er í alla helstu þjónustu eins og grunnskóla, leikskóla, matvöruvöruverslun og fleira.
Samantekt: Í heildina er um að ræða vel um gengna og fallega 4ra herbergja eign á 3.hæð /efstu) í lágreistu fjölbýli, innst í botnlanga. Íbúðin hefur nokkuð nýlega verið fallega endurnýjuð og húsið fengið gott viðhald.
Góð staðsetning; Húsið er í rólegum botnlanga. Göngufæri er í leik- og grunnskóla. Einnig eru hjóla- og göngustígar allt í kring þar sem er að finna miðbæ Hafnarfjarðar, sundlaug, íþróttamiðstöð o.fl. Örstutt er út í óspillta náttúruna.
Allar nánari upplýsingar veitir Elín Viðarsdóttir lgfs, elin@valholl.is, gsm. 695-89805