Veggur - Veitingarekstur og gistiaðstaða við Demantshringinn
Lögeign kynnir fjölnota atvinnueign á einstaklega góðum stað við Dettifossveg (862) í Kelduhverfi. Í eigninni er í dag rekið veitingahús og gistiheimili og býður hún upp á mikla möguleika til áframhaldandi uppbyggingar í ferðaþjónustu og annarri atvinnustarfsemi.
Eignin stendur við Demantshringinn, eina þekktustu ferðamannaleið Norðausturlands, og er staðsetningin án efa einn helsti styrkleiki hennar. Stutt er í fjölmargar af þekktustu náttúruperlum svæðisins, þar á meðal Ásbyrgi, Hljóðakletta og Dettifoss, auk þess sem Húsavík og Mývatn eru í þægilegri akstursfjarlægð. Á svæðinu og í næsta nágrenni eru jafnframt fjölbreyttar gönguleiðir og fjölmargir áhugaverðir áfangastaðir fyrir ferðamenn. Góð aðkoma er að eigninni beint frá Dettifossvegi og við húsið er rúmgott malarplan með góðu svigrúmi fyrir bílastæði. Húsið er klætt að utan með bárujárni og fellur vel að víðáttumiklu umhverfinu. Lóðin umhverfishúsið er leigulóð sem er 3.072 m² að stærð.
Veitingahúsið er byggt árið 2021 en gistirými í báðum endum eru eldri einingar sem hafa verið gerðar upp og settar við veitingahúsið. Samtals stærð eignarinnar er 676,4 m². Eignin hefur verið byggð upp með ferðaþjónustu í huga og skiptist í rúmgóða veitinga- og þjónustuaðstöðu ásamt gistihluta. Miðsvæðis í húsinu er bjartur og rúmgóður veitingasalur með stórum gluggum og fallegu útsýni yfir landslag Kelduhverfis. Úr veitingasalnum er gengið út á timburverönd sem skapar góða útiaðstöðu fyrir gesti. Við veitingasalinn er bar og fullbúið atvinnueldhús. Gistihluti eignarinnar samanstendur af 13 gestaherbergjum, auk sex herbergja sem hafa meðal annars nýst sem starfsmannaaðstaða. Herbergin gefa jafnframt möguleika á annarri nýtingu, svo sem fyrir skrifstofur, fundaraðstöðu eða önnur stoðrými. Sameiginleg snyrti- og sturtuaðstaða þjónar gistihluta eignarinnar en einnig er við inngang í eignina nokkur salerni með sturtuaðstöðu.
Um er að ræða tækifæri til að eignast rúmgóða og fjölnota atvinnueign á eftirsóttum stað, þar sem nú þegar er til staðar aðstaða fyrir bæði veitingarekstur og gistingu. Eignin býður jafnframt upp á fjölbreytta möguleika til frekari þróunar og nýtingar í tengslum við ört vaxandi ferðaþjónustu á svæðinu.
Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. 2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal. 3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. 4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. 5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
Byggt 2021
676.4 m2
16 Herb.
Jarðhæð
Garður
Pallur
Fasteignanúmer
2506251
Landnúmer
228846
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Talið í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
TIL SÖLU EÐA LEIGU

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.