Fasteignaleitin
Skráð 6. júní 2024

Brekkugata 25 - neðri hæð

FjölbýlishúsNorðurland/Ólafsfjörður-625
83.3 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
24.900.000 kr.
Fermetraverð
298.920 kr./m2
Fasteignamat
19.950.000 kr.
Brunabótamat
41.900.000 kr.
BD
Björn Davíðsson
Löggiltur fasteignsali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2154000
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjaðar árið 2021
Raflagnir
Raflagnir yfirfarðar og tafla endurnýjuð 2008
Frárennslislagnir
Endurnýjaðar árið 2021
Gluggar / Gler
Gler og opnanleg fög endurnýjað að mestu í húsinu eftir 2007
Þak
Þak var endurnýjað 2018
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
41,17
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti í stærstum hluta
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Skemmd er neðst á rennihurðinni inn á baðherbergi og hurðarkarmi. 
Fúgu vantar á nokkrum stöðum milli flísa. 
 
Kvöð / kvaðir
sjá nánar í eignaskiptasamningi.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Brekkugata 25 Ólafsfirði - Mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð með sér inngangi á neðri hæð í tvíbýlishúsi - stærð 83,3 m²


Íbúðin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi og geymslu. Sameiginlegt þvottahús og sameiginlegur bakinngangur. 

Forstofa og hol eru með flísum á gólfi og tvöföldum innfelldum skáp. 
Eldhús, spónlögð eikar innrétting með dökkri stein bekkplötu og flísum fyrir ofan. Ísskápur er innfelldur í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Innfelld lýsing er í hluta af lofti. Borðkrókur með útsýnisglugga yfir bæinn.
Stofa er með parketi á gólfi og gluggum til tveggja átta. 
Svefnherbergin eru tvö, bæði með parketi á gólfi og spónlögðum eikar fataskápum. 
Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir, spónlögð eikar innrétting með dökkri stein bekkplötu, upphengt wc, sturta með glerhurðum og opnanlegur gluggi. Rennihurð er inn á baðherbergið. 
Geymsla er með flísum á gólfi. Gengið er í gegnum geymsluna þegar farið er inn í þvottahúsið. 
Þvottahús er í sameign með efri hæðinni og þar eru flísar á gólfi, eldri innrétting og opnanlegur gluggi. Við hliðina á þvottahúsinu er sameiginlegu bakinngangur með flísum á gólfi. 

Annað
- Íbúðin var mikið endurnýjuð árið 2008, lagður gólfhiti, ný gólfefni, nýjar innihurðar, baðherbergi og eldhús endurnýjað, nýjir fataskápar o.fl.
- Gler og opnanleg fög var endurnýjað að stærstum hluta eftir árið 2007
- Raflagnir voru yfirfarnar og rafmagnstafla endurnýjuð árið 2008
- Þak var endurnýjað árið 2018 og húsið málað að utan. 
- Vatns- og frárennslislagnir voru endurnýjaðar árið 2021
- Lóð er í sameign og er sameiginleg verönd sunnan við húsið.
- Hitalagnir eru í tröppum fyrir framan húsið. 
- Sér hitaveitu- og rafmagnsmælar.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
08/11/202415.750.000 kr.48.000.000 kr.211.4 m2227.057 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (18)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Flétturimi 32
Diddi_vefur (14).jpg
Skoða eignina Flétturimi 32
Flétturimi 32
112 Reykjavík
98.2 m2
Fjölbýlishús
312
712 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Laufvangur 14
Opið hús:18. mars kl 17:00-17:30
Skoða eignina Laufvangur 14
Laufvangur 14
220 Hafnarfjörður
89 m2
Fjölbýlishús
312
729 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Baugakór 3
Bílastæði
Opið hús:15. mars kl 15:30-16:00
Skoða eignina Baugakór 3
Baugakór 3
203 Kópavogur
96.3 m2
Fjölbýlishús
312
778 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 0510
Opið hús:15. mars kl 13:00-13:30
laugaborg 510 nyr afangi.jpg
Skoða eignina Laugaborg 0510
Laugaborg 0510
105 Reykjavík
145.5 m2
Fjölbýlishús
423
1368 þ.kr./m2
199.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin