Fasteignaleitin
Skráð 9. maí 2026

Tjarnargata 10b - 301

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
109.1 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
99.800.000 kr.
Fermetraverð
914.757 kr./m2
Fasteignamat
86.200.000 kr.
Brunabótamat
52.900.000 kr.
Mynd af Páll Pálsson
Páll Pálsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2002795
Landnúmer
100912
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Endurnýjaðar - Sjá ástandsyfirlýsingu seljanda
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Tjarnargata 10B – íbúð 301, 101 Reykjavík.

Fallega endurnýjuð og einstaklega sjarmerandi 4ra herbergja íbúð á 3. hæð við Tjarnargötu í hjarta Reykjavíkur. Eignin var endurnýjuð árið 2024 með áherslu á gæði, flæði og samræmda heildarhönnun, þar sem eldhús, gangur og borðstofa voru opnuð saman og úr varð björt og glæsileg borgaríbúð með fallegum klassískum smáatriðum og vönduðu efnisvali.

Glæsileg eign - Sjón er sögu ríkari!

Skráð stærð 109,1 fm

Helstu atriði
  • Endurnýjuð árið 2024 og hönnuð af landsþekktum innanhússarkitekt
  • Sérsmíðað eldhús frá Svanverk með Patagonia Quartzite borðplötu og SMEG heimilistækjum.
  • Chevron-lagt vinylparket, loftlistar og rósettur sem skapa hlýlegt og klassískt yfirbragð.
  • Baðherbergið er eftir til endurnýjunar og gefur nýjum eiganda tækifæri til að setja sinn eigin svip á eignina.

Nánari upplýsingar veita:
Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur


Nánari lýsing
Við Tjarnargötu 10B er að finna þessa fallegu og vel heppnuðu 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í reisulegu húsi frá 1945. Eignin var endurnýjuð árið 2024 með afar smekklegum hætti þar sem lögð var sérstök áhersla á gæði, samræmda heild og betra flæði innan íbúðarinnar. Við breytingarnar var skipulag rýmisins endurhugsað og eldhús, gangur og borðstofa opnuð saman, sem skapar meiri birtu, betri tengingu milli rýma og léttara yfirbragð á heimilinu. Milli stofu og borðstofu eru rennihurðir sem gefa möguleika á að loka af rýmin þegar þess er óskað, án þess að taka frá eigninni opna og glæsilega heildarmynd.

Eldhúsið er sérsmíðað frá Svanverk og er sannkallaður miðpunktur eignarinnar. Þar nýtur sín einstaklega falleg Patagonia Quartzite borðplata með innfelldum vaski og vönduðu baki við vasksvæði, ásamt heimilistækjum frá SMEG Italia og blöndunartækjum frá Axor Montreux. Eyjan er klædd burstuðu stáli sem gefur rýminu fágað og nútímalegt yfirbragð og fallegt Long John ljós frá Rubn setur sterkan svip á rýmið. Grunnar hillur með kampavínslituðum spegli í baki og lóðréttri LED-lýsingu undirstrika síðan þann vandaða og stílhreina frágang sem einkennir eignina.

Í allri íbúðinni er nýtt chevron-lagt vinylparket sem gefur heimilinu hlýlegt og klassískt yfirbragð. Loft eru skreytt fallegum listum og rósettum og á gangi setja Arte veggfóður og listar frá Orac Decor sérstaklega glæsilegan svip á rýmið. Þykkur stálrammi skilur eldhús frá gangi og við breytingar á skipulagi var burðarvirki styrkt með stálbitum í samráði við verkfræðing. Öll lýsing í íbúðinni hefur verið endurnýjuð, ásamt hluta raflagna, dimmerar eru á öllum ljósum og rofar og innstungur frá Thomas Hoof í Þýskalandi undirstrika vandaðan frágang.

Hurðir og gluggar hafa verið yfirfarnir og málaðir vandlega og hurðarhúnar frá Beslag Design í Danmörku falla vel að heildarútliti eignarinnar. Í stofu og borðstofu eru Roman blinds gardínur en myrkvunargluggatjöld í svefnherbergjum. Baðherbergið er eina rýmið sem eftir er að endurnýja, sem gefur nýjum eiganda kærkomið tækifæri til að útfæra það að eigin smekk og þörfum. Mögulegt er að ganga inn á baðherbergi bæði frá svefnherbergi og af gangi, sem eykur notagildi rýmisins. Hér er því um að ræða afar smekklega og vel endurnýjaða borgaríbúð þar sem klassískur sjarmi og nútímalegur frágangur fara einstaklega vel saman.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
26/03/202478.400.000 kr.78.000.000 kr.109.1 m2714.940 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (45)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skjólbraut 11
Opið hús:11. maí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Skjólbraut 11
Skjólbraut 11
200 Kópavogur
104.9 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
914 þ.kr./m2
95.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Bílastæði
Opið hús:09. maí kl 16:00-17:00
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
100.1 m2
Fjölbýlishús
312
1068 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Bílastæði
Opið hús:09. maí kl 16:00-17:00
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
140.9 m2
Fjölbýlishús
423
1163 þ.kr./m2
163.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Bílastæði
Opið hús:09. maí kl 16:00-17:00
Skoða eignina Hafnarbraut 18
Hafnarbraut 18
200 Kópavogur
79 m2
Fjölbýlishús
21
1113 þ.kr./m2
87.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin