Fasteignaleitin
Skráð 10. nóv. 2025
Deila eign
Deila

Baldursgata 30

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
127.5 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
114.900.000 kr.
Fermetraverð
901.176 kr./m2
Fasteignamat
86.550.000 kr.
Brunabótamat
57.850.000 kr.
Mynd af Þórunn Pálsdóttir
Þórunn Pálsdóttir
Lögg. fasteignasali
Byggt 1921
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2007565
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
2
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Háborg kynnir íbúð 201. Heillandi og bjarta  fimm herbergja hæð á þessum vinsæla stað í Þingholtunum.  Tvö svefnherbergi og þrennar stofur innan íbúðar og gott 13 fm  herbergi á jarðhæð með aðgangi að baði.  Sólríkar  sameiginlegar þaksvalir á 4. hæð. Rúmgott baðherbergi með opnanlegum glugga.  Góð 5,5 fm geymsla  á 4.hæð undir súð og með mörgum súðarfermetrum.  Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf s:773-6000 og thorunn@haborg.is

Nánari upplýsingar:
Baldursgata 30 skiptist í tvö hús og er íbúðin í eldri hlutanum (matshluta 1) sem var byggður árið 1921. Aðeins þrjár íbúðir deila inngangi og nær eignin yfir alla aðra hæðina. Þaksvalir á fjórðu hæð eru í sameign með íbúðunum tveimur á þriðju  hæð.
Gengið er upp eina hæð og komið í bjarta forstofu.  Á hægri hönd er aðal svefnherbergi íbúðarinnar. Inn af því er annað svefnherbergi sem einnig er hægt að ganga inn í frá stigapalli eins og nú er gert en eignin nær yfir alla hæðina.  Beint af augum er glæsilegt rúmgott baðherbergi með opnanlegum glugga, sturtu og baðkeri og þvottaaðstöðu.  Fallegar  svartar og hvítar flísar eru á forstofu og baðherbergi, en parket á öðrum rýmum.  Innréttingar og litaval hæfa húsinu einstaklega vel.  Á vinstri hönd frá forstofu er eldhúsið sem tengist þremur björtum samliggjandi stofum sem liggja í hring, en vel væri  hægt að nýta stofurnar sem svefnherbergi.
Bjart 13 fm herbergi á jarðhæð, með aukinni lofthæð, tilheyrir íbúðinni.  Það hefur aðgang að  nettu baðherbergi með opnanlegum glugga og sturtu.  Baðherbergið er í sameign með annarri íbúð.

Á undanförnum árum hafa töluverðar endurbætur farið fram á húsinu. Helst ber að nefna að gluggar og gler íbúðarinnar voru endurnýjaðir árið 2017, skipt var um fög og sett tvöfalt gler í samráði við Minjastofnun (ekki var talin ástæða til að skipta um pósta og karma). Gluggar voru síðast málaðir sumarið 2025.  Árið 2020 var gert við þak og steinsteyptan þakkant hússins, sperrur hreinsaðar og rennur og niðurfallsrör endurnýjuð með eldra útliti í samráði við Minjastofnun.


Sérlega smekkleg og heillandi hæð með útleigueiningu á þessum vinsæla stað í hjarta miðborgarinnar.
Allar frekari upplýsingar gefur Þórunn Pálsdóttir lgf.  s:773-6000 og thorunn@haborg.is
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/02/201642.450.000 kr.46.500.000 kr.127.5 m2364.705 kr.
24/09/201433.900.000 kr.37.000.000 kr.127.5 m2290.196 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Tryggvagata 21
Skoða eignina Tryggvagata 21
Tryggvagata 21
101 Reykjavík
88.2 m2
Fjölbýlishús
322
1235 þ.kr./m2
108.900.000 kr.
Skoða eignina Hverfisgata 96
Bílastæði
Skoða eignina Hverfisgata 96
Hverfisgata 96
101 Reykjavík
114.9 m2
Fjölbýlishús
312
956 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Lindargata 37
Bílastæði
Skoða eignina Lindargata 37
Lindargata 37
101 Reykjavík
94.5 m2
Fjölbýlishús
312
1163 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 96
3D Sýn
Skoða eignina Laugavegur 96
Laugavegur 96
101 Reykjavík
145.9 m2
Fjölbýlishús
212
719 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin