Fasteignaleitin
Skráð 11. apríl 2025
Deila eign
Deila

Kuggavogur 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
104.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
85.900.000 kr.
Fermetraverð
824.376 kr./m2
Fasteignamat
79.700.000 kr.
Brunabótamat
68.390.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2022
Þvottahús
Lyfta
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2511013
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
8
Vatnslagnir
Nýlegar
Raflagnir
Nýlegar
Frárennslislagnir
Nýlegar
Gluggar / Gler
Nýlegt
Þak
Nýlegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Kuggavogur 5 Reykjavík - Bókið skoðun.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynna til sölu afar fallega og vel skipulagða 104,2 fermetra 3-4 herbergja íbúð á 1. hæð með skjólgóðum suðursvölum í nýlegu fjölbýlishúsi með lyftu við Kuggavog 5 í Reykjavík. Vandað hús byggt af ÞG Verk. Vel staðsett íbúð sem snýr að torginu (Vorputorgi) í Vogabyggð. Dýrahald er leyfilegt í húsinu. 

Rúmgott alrými sem er opin stofa við eldhús og auk þess er sér sjónvarpsstofa fyrir miðri íbúð. Sér bílastæði í lokuðum bílakjallara á góðum stað. Útgengi úr stofu á svalir til suðurs. Gott þvottaherbergi inn af íbúð. Rúmgóð 9,3 fermetra sérgeymsla í kjallara og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. 

Hellulögð stétt fyrir framan hús með snjóbræðslu. Sameign er snyrtileg með flísum á sameiginlegri forstofu og teppi á stigagöngum. Lyklalaust aðgengi á flestum hurðum í sameign og kjallara. Nýlegt myndavélakerfi í bílakjallara. Myndavéladyrasími í íbúðum. Bílnúmeramyndavélar á aðalhurð í bílakjallara sem lesa bílnúmer við innakstur. Fallegur bakgarður sem er tyrfður lyngtorfi, garðbekkjum, kvöldlýsingu og leiktækjum.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu nýlegu fjölskylduhverfi í Vogabyggð í Reykjavík. Leikskóli í göngufjarlægð. Verslun og þjónusta í næsta nágrenni ásamt frábærum hjóla- og gönguleiðum við Elliðaárvoginn. Mikil útivist allt í kring og fallegt umhverfi. Laugardalurinn í næsta nágrenni.

Nánari lýsing:

Forstofa: Með harðparketi á gólfi og skápum.
Stofa: Er rúmgóð, með harðparketi á gólfi og gluggum til suðurs að torginu. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Stofa er opin við eldhús.
Svalir: Snúa til suðurs og eru mjög skjólgóðar með harðviði á svalagólfi (lerki).
Eldhús: Með harðparketi á gólfi og fallegri sprautulakkaðri eldhúsinnréttingu með eyju frá Nobila (GKS). Innbyggður kæliskápur með frysti, innbyggð uppþvottavél, spansuðuhelluborð, bakaraofn og eyjuháfur. Stýranleg lýsing undir skápum og útloftun.
Sjónvarpsstofa: Með harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi og hluta veggja. Flísalögð sturta með glerþili og falleg sprautulökkuð innrétting við vask með speglaskáp fyrir ofan. Handklæðaofn, upphengt salerni og útloftun.
Þvottaherbergi: Með flísum á gólfi, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og útloftun. Góð innrétting með hækkun undir þvottavél og þurrkara, skápar og þvottasnúrur.
Svefnherbergi I: Er rúmgott með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til norðurs inn í bakgarð.
Svefnherbergi II: Er gúmott með harðparketi á gólfi, skápum og gluggum til norðurs inn í bakgarð.

Geymsla: Er staðsett á geymslugangi og er 9,3 fermetrar að stærð. Mikil lofthæð (rúmlega 3 metra lofthæð) og Málað gólf.

Bílastæði í lokuðu bílskýli: Vel staðsett. Myndavélavaktaður bílakjallari og aðgangsstýring (myndavélar) á bílakjallara.

Hjóla og vagnageymsla: Er staðsett við bílageymslu og með útgengi á baklóð hússins.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/02/202227.650.000 kr.70.500.000 kr.104.2 m2676.583 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2022
Fasteignanúmer
2511013
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B1
Númer eignar
45
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
6.440.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kleppsmýrarvegur 6 - Íbúð 108
Bílastæði
Opið hús:22. apríl kl 17:00-18:00
Kleppsmýrarvegur 6 - Íbúð 108
104 Reykjavík
95.4 m2
Fjölbýlishús
312
869 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Arkarvogur 1 - Íbúð 301
Bílastæði
Opið hús:22. apríl kl 17:00-18:00
Arkarvogur 1 - Íbúð 301
104 Reykjavík
99.7 m2
Fjölbýlishús
312
852 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Arkarvogur 1 - Íbúð 201
Bílastæði
Opið hús:22. apríl kl 17:00-18:00
Arkarvogur 1 - Íbúð 201
104 Reykjavík
98.2 m2
Fjölbýlishús
312
844 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Skoða eignina Arkarvogur 1 - Íbúð 104
Bílastæði
Opið hús:22. apríl kl 17:00-18:00
Arkarvogur 1 - Íbúð 104
104 Reykjavík
109.4 m2
Fjölbýlishús
43
822 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin