NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.ISSMELLTU HÉR OG SJÁÐU KYNNINGU Á ÞESSUM FALLEGU EIGNUMRE/MAX ásamt GUÐNÝJU ÞORSTEINS löggiltum fasteignasala kynnir í einkasölu: Engjaland 4, íbúð 401, björt og falleg þriggja herbergja íbúð á fjórðu hæð með glæsilegu útsýni í lyftuhúsi með bílskýli í bílastæðakjallara í vandaðri nýbyggingu fyrir 55 ára og eldri.Íbúðin er laus til afhendingar, fullfrágengin með gólfefnum. Frekari upplýsingar um bygginguna er að finna á
Engjaland.isSMELLTU HÉR OG FÁÐU SÖLUYFIRLIT SAMSTUNDISEignin samanstendur af: Forstofu, tveimur svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, þvottahúsi, eldhúsi og stofu sem eru í samliggjandi flæðandi rými með arni, ásamt útgangi út á stórar svalir. Bílskýli í bílakjallara fylgir íbúðinni ásamt geymslu. Gólfefni eru vínilparket og flísar frá Parka að nafni Sunstone Baugi í votrýmum.
Samkvæmt Fasteignamati Ríkisins er íbúðin samtals 154m
2 ásamt geymslu í sameign 11,7m
2. Svalir eru 81,2m
2 .
Nánari lýsing:Forstofa: Er með fataskápum sem ná upp í loft.
Salerni I: Er flísalagt
með steini á borði, vaski með skúffum undir, rúmgóðri "walk in" sturtu, ásamt upphengdu salerni.
Herbergi I: Er með fataskápum sem ná upp í loft.
Herbergi II: Er rúmgott með fataskápum sem ná upp í loft, innangengt er á sér baðherbergi.
Salerni II: Er flísalagt
með steini á borði, vaski með skúffum undir, upphengdu salerni, rúmgóðri "walk in" sturtu. Útgengt er á svalir úr baðherberginu þar sem lagt er fyrir heitum potti.
Þvottahús: Er með þvottavéla-innréttingu, skápum ásamt skolvaski.
Eldhús/borðstofa: Undir efri skápum er innfræst led- lýsing, á borðplötum í er steinn sem heitir Meteor Ice frá S. Helgasyni. Í innréttingunni eru vönduðum tæki af gerðinni AEG frá Ormsson, blástursofn, innbyggð uppþvottavél ásamt innbyggðum kæliskáp með frysti. Á eyju er span helluborð með fallegum háfi yfir. Borðstofan er rúmgóð í opnu og björtu rými.
Stofa/alrými: Er í stóru og björtu alrými sem bæði getur rúmað stofu og sjónvarpshol. Arinn er í stofu. Útgangur er út á stórar svalir með ainstöku útsýni.
Svalir: Gengið er úr stofu á 81,2m
2 svalir, gler er að hluta á svalahandriði, flísalagt er á vandaðan hátt. Lagnir eru til staðar fyrir heitum potti.
Geymsla: Er 11,7m
2 - nr.0013.
Bílastæði: Er merkt B5 í upphituðum bílastæðakjallara.
Íbúðinni fylgja ýmis þægindi: Í íbúðinni er sérstakt loftræstikerfi sem bætir loftgæði og tryggja rétt loftskipti. Innfelld lýsing í öllum rýmum. Litaval á innréttingum er virkilega fallegt og milt. Lagt er fyrir rafhleðslustöð í bílageymslu. Allar íbúðir eru með sérmerkt bílastæði þar af fjórar íbúðir með sérmerkt bílastæði fyrir utan bygginguna og 10 íbúðir með sérmerkt stæði í bílakjallara byggingarinnar. Á bílaplani fyrir utan bygginguna eru 19 bílastæði þar af tvö sérmerkt fyrir hreyfihamlaða.
Þetta er björt og falleg eign með öllum helstu þægindum nútímans
Byggingaraðili:
RENY ehfByggingarstjóri:
Húsaverk ehfIðn- og lýsingahönnuður: Sólveig Andersen
Hönnun húss og lóðahönnun: Pro-Ark teiknistofa
Verkfræðihönnun: Verkfræðistofan HnitRaflagnahönnun: Rafhönnun ehf
Kaupandi greiðir 0,3 % skipulagsgjald sem er innheimt þegar endanlegt brunabótamat liggur fyrir. Ítarlegri upplýsingar veitir Guðný Þorsteins. í s:771 5211 eða gudnyth@remax.is Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.