Domusnova fasteignasala og Sverrir Sigurjónsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali kynna:Í einkasölu:
Glæsilegt Sumarhús í landi Miðengis, við Kerið.
Húsið er einnig hentugur fjárfestikostur og er með gistileyfi II sem heimilar rekstur á skammtímaleigu og eftir fyrsta sumarið hefur húsið verið með góðar tekjur og frábæra umsögn á bókunnarsíðum.
Húsið er fyrir vandláta en öll smáatriði og ending voru hugsuð til enda, Húsið stendur á 8.900 fm eignarlandi og er byggt á steypta sökkla með steyptri plötu, burðarvirki hússins er timbur, klætt með liggjandi smábáruáli, Báruál er á þaki.
Fyrirgað er að byggja allt að 40 fm aukahús á lóðinni og er búið að jarðvegsskipta og gera púða undir það hús, samþykktar teikningar liggja fyrir.
Að innan telur eignin:Forstofa er lokuð af með millihurð og vinylparketi á gólfi , þar er fataskápur og aðgengi að geymslulofti. Hiti í gólfum.
Svefnherbergisgangur með vinylparketi á gólfi og Philips hue led lýsingu í lofti.
Eldhús samliggjandi stofu í stóru rými, þar sem loft eru upptekin með lofthæð yfir 4 metra , vinylparket er á gólfi minimalískur stílhreinn stíll, eldhúsinnrétting er ítölsk frá Parka er hvít, með stórri eyju úr Quartzstein , einnig er sama efni í eldhúsi. Stór rennihurð er úr stofu út á sólpall.
Svefnherbergi eru 3 rúmgóð björt með vinylparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og flísaplötur á veggjum, ásamt Philips Hue Ledlýsingu, "walk in" sturta, upphengt WC, innrétting með handlaug og handklæðaofn. Gólfhiti er á baðherbergi
Þvottahús er með vinylparketi
Geymsluloft er yfir svefnherbergisálmu, sem er manngengt fyrir miðju.
Allar innréttingar, innihurðir og gólfefni eru frá Parka, . Allir sólbekkir eru úr Quartz steini frá Parka, og var mikið vandað til við efnaval og verka.
Lýsingin í húsinu er mjög vönduð og eru bæði innbyggð ljós með töfludimmerum og óbein lýsing.
Rúmgóð verönd með skjólveggjum er við húsið og er heitur pottur á veröndinni.
Umhverfi hússins er mjög fallegt, mikið af birkigróðri og lyngi.
Tæplega 30 fermetra einangraðu og upphitaður rgeymslugámur stendur við húsið
Húsið er einstaklega vel staðsett, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, sundlaugar, golfvelli, veitingastaði ofl. Frábær staðsetning til að leigja húsið út til ferðamanna.
Nánari upplýsingar veitir:Sverrir Sigurjónsson löggiltur fasteignasali / s.662 4422 / sverrir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.500,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.