Birkiholt 2 íbúð 204 - Mjög vel staðsett 3ja herbergja íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi á Álftanesinu - Stærð 95,1 m².
Upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, 888-6661, siggithrastar@kaupa.is
*** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning***
Eignin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.
Eldhús er með ljósri filmaðri innréttingu og góðu skápaplássi. Ofn, helluborð og vifta, stæði er fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu og fylgir hvoru tveggja með við sölu eignarinnar. Flísar á gólfi.
Stofa/borðstofa er í opnu rými með eldhúsi. Plastparket á gólfi og útgengt á góðar 8,0 m² svalir. Leyfi er fyrir að setja upp svalalokun á svalir.
Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði með fataskápum og plastparketi á gólfi.
Baðherbergi er með ljósri innréttingu, baðkari með sturtutækjum og upphengdu salerni. Flísar eru á gólfi og veggjum.
Þvottahús er innan íbúðar. Pláss fyrir þvottavél, sem fylgir með við sölu og þurrkara í vinnuhæð og gott skápapláss.
Sérgeymsla, 7,8 m², er á jarðhæð, þar eru hillur og gluggi.
Annað:- Sameiginleg hjóla og dekkjageymsla er á 1. hæð.
- Stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttasvæði.
- Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.