Ólafsgeisli 45 - Einstaklega vel staðsett raðhús með stórbrotnu útsýni!
Um er að ræða afar vel staðsett og glæsilegt raðhús á eftirsóttum stað í Grafarholtinu með stórkostlegu útsýni yfir höfuðborgarsvæðið og víðar. Eignin er skráð samtals 192,5 fm samkvæmt fasteignaskrá, þar af er íbúðarhluti 166,6 fm og bílskúr 25,9 fm, en samkvæmt teikningum eignarinnar er húsið skráð 218,4 fm og skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 185,2 og bílskúrinn 33,2 fm.
Skipulag eignarinnar er einstaklega gott og nýtist hver fermetri vel. Umhverfið er fjölskylduvænt og stutt er í leikskóla, grunnskóla, fjölbreyttar gönguleiðir og útivistarsvæði. Þá er Golfklúbbur Reykjavíkur í göngufæri frá eigninni. Eign sem vert er að skoða fyrir þá sem leita að fallegu fjölskylduhúsi með miklu útsýni, góðu skipulagi og eftirsóttri staðsetningu.
Nánari lýsing: Komið er inn í rúmgóða forstofu þar sem fallegur glerveggur skilur á glæsilegan hátt milli forstofu og alrýmis. Lausnin opnar sjónlínu inn í eignina og gerir það að verkum að birta og útsýni njóta sín um leið og gengið er inn. Gestasalerni er inn af forstofu. Alrými eignarinnar er bjart og glæsilegt með stórum gluggum sem hleypa mikilli náttúrulegri birtu inn í rýmið. Þar sameinast stofa, borðstofa og opið eldhús á fallegan hátt. Eldhúsið er snyrtilegt með góðu skápaplássi, vinnuaðstöðu og stórri eyju sem myndar skemmtilega miðju rýmisins. Frá stofu er útgengt út á rúmgóðar svalir sem snúa vel gagnvart sólu og bjóða upp á einstakt útsýni yfir borgina og nágrennið. Á efri hæðinni er einnig herbergi með rennihurð sem nýtist vel sem svefnherbergi, sjónvarpsherbergi eða skrifstofa. Fallegur stigi tengir saman hæðir eignarinnar. Á neðri hæðinni tekur við rúmgott opið rými með útgengi út í bakgarð. Þar eru í dag tvö góð svefnherbergi, en auðvelt er að bæta við þriðja herberginu ef þörf er á. Baðherbergið er flísalagt og búið fallegri innréttingu og rúmgóðri „walk-in“ sturtu. Þvottahús er með innréttingu og tengingum fyrir þvottavél og þurrkara. Þá er einnig rúmgott fataherbergi með góðu skápaplássi, einnig er stór góð geymsla á neðri hæðinni. Garðurinn er gróinn og viðhaldsléttur. Snyrtilegur sólpallur með heitum potti býður upp á notalega aðstöðu til útivistar og samverustunda. Aðkoma að húsinu er góð með hellulögðu bílaplani. Bílskúrinn er flísalagður og búinn bæði heitu og köldu vatni.
Nánari upplýsingar veitir: Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.