Fasteignaleitin
Skráð 17. sept. 2026

Akurbraut 38

RaðhúsSuðurnes/Reykjanesbær/Njarðvík-260
133.7 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
81.900.000 kr.
Fermetraverð
612.565 kr./m2
Fasteignamat
80.400.000 kr.
Brunabótamat
67.300.000 kr.
Mynd af Unnur Svava Sverrisdóttir
Unnur Svava Sverrisdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2007
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2287009
Landnúmer
200462
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Virkar vel
Raflagnir
Virkar vel
Frárennslislagnir
Í plasti
Gluggar / Gler
Gott, upprunalegir
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Sólpallur með heitum potti
Upphitun
Gólfhiti, hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Gallar
Los í tveimur flísum í sólstofu. Það hefur gætt smá leka á einum stað í sólstofu við miklar rigningar. Seljendur telja sig vera búin að laga það í samráði við smið. Það hefur komið útbungun í málningu á einum stað við útvegg í herbergi/geymslu við bílskúr. Gerðar voru ráðstafanir af pípara og fyrirmælum pípara fylgt (kíttað utandyra) og teljum seljendur sig búin að laga það.
Heiti potturinn virkaði ekki þegar eignin var keypt 2023. Hann hefur verið gerður upp með ýmsum leiðum svo hann sé nothæfur. Þó hefur einhver lögn sprungið svo hann tæmist hægt og rólega eftir að slökkt er á honum en er enn vel nothæfur.
Minnihátta skemmd neðst á baðherbergishurð. Móða í einum glugga í bílskúrshurð. Lamir á þvottahúsglugga verða lagfærðar fyrir afhendingu
Það kom upp vatnsvesen undir parket frá baðherbergi að barnaherbergi norður (að öllum líkindum vegna bala sem var velt og vatn helltist fram á gang). Engir sénsar voru teknir varðandi myglu eða vatnsvesen lengra inní stofu og hjónaherbergi svo allt gólfefni var tekið upp og skipt út ásamt fataskápum.
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu eignina:
Virkilega fallegt, bjart og vel við haldið raðhús með þremur svefnherbergjum, bílskúr og afgirtum sólpalli með heitum potti að Akurbraut 38, 260 Reykjanesbæ, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 228-7009 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin er skráð sem hér segir hjá FMR, birt stærð 133.7 fm.

Nánari upplýsingar og söluyfirlit veitir: Unnur Svava Sverrisdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 868-2555, tölvupóstur unnur@allt.is.

Framkvæmdir sem hefur verið farið í undanfarin 3 ár:
* Nýtt parket lagt af smið í fyrra á öll rými nema sólhús og bað, ásamt undirlagi og gólflistum. Nýr klæðaskápur.
* Mótorlokar í dreifikistu hafa verið uppfærðir eftir þörfum og loki á handklæðaofni hefur verið endurnýjaður.
* Hurðargat í léttvegg við bílskúrsherbergið lokað, smiður
* Nýr bílskúrsmótor, tvær fjarstýringar, settur upp af sérfræðing bílskúrshurða 
* Bilskúr teppalagður, smiður
* Listi á/undir bílskúrshurð skipt út, smiður
* Uppþvottavél endurnýjuð í eldhúsi
* Búið er að þrýstimæla bað og barnaherbergi. Gólfhitakista er í lagi og það er góður hiti í húsinu.
* Múrari endurnýjaði fúgu og kítti í sturturými.
* Útikrani endurnýjaður af pípara
* Einn nýlegur gluggi í sólstofu, smiður

Júní 2026 - Pallur þveginn og olíuborin, bæði dekk og skjólveggir. Ruslatunnuskýli olíuborin
Júní 2026 - Ný blöndunartæki í sturtu og sturtuhausar, pípari
September 2026 - Útihurðar norður málaðar
September 2026 - Vatnsbretti úti við sólstofu endurnýjað, smiður, verður lokið fyrir afhendingu
September 2026 - Nýjar lamir á þvottahúsglugga, smiður, verður lokið fyrir afhendingu


Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð með góðum klæðaskáp.
Innangengt er úr forstofu inn í flíslagt þvottahús og inn í bílskúr með góðu millilofti. Bílskúr er teppalagður
Stofa / borðstofa / sjónvarphol og sólskáli í opnu rými með nýlegu parketi á gólfi og flísum á sólstofu.
Úr sólstofu er útgengt út á stóran afgirtan sólpall sem snýr til suðurs, þar er heitur pottur og útigeymsla. 
Grasblettur fyrir aftan sólpall fylgir eign. Hlið er á sólpalli til að komast út í bakgarð. Góð lóð að framanverðu húsi.
Eldhús er með fallegri innréttingu og flísum á gólfi, þaðan er útgengt út í framgarð og sjávarútsýni.
Svefnherbergi er inn af sólstofu með parket á gólfi og góðum glugga, var áður herbergi inn af bílskúr.
Baðherbergi er flísalagt í hólf í gólf með fallegri innréttinu og sturtu.
Svefnherbergi á herbergisgangi með parket á gólfi.
Hjónaherbergi hefur parket á gólfi og góða klæðaskápa.
Hiti er í plani fyrir framan húsið og stæði fyrir 4 bíla.
Falleg eign í góðu hverfi, falleg útivistarsvæði og gönguleiðir meðfram hafinu, í göngufæri við leik og grunnskóla, sundlaug, verslun og bakarí.
Eignin er í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæði.


Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.

ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
 
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.

Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/06/202358.550.000 kr.69.000.000 kr.133.7 m2516.080 kr.
13/11/200717.630.000 kr.27.400.000 kr.133.7 m2204.936 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2007
29.7 m2
Fasteignanúmer
2287009
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
10.550.000 kr.

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hlíðarvegur 30
Á einni hæð
Opið hús:19. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hlíðarvegur 30
Hlíðarvegur 30
260 Reykjanesbær
145.2 m2
Raðhús
514
598 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Skógarbraut 924A 301
Efsta hæð
Skógarbraut 924A 301
262 Reykjanesbær
124.6 m2
Fjölbýlishús
524
449 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Skoða eignina Kolagata 3
Skoða eignina Kolagata 3
Kolagata 3
101 Reykjavík
117.2 m2
Fjölbýlishús
322
1151 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Nónhamar 2
Efsta hæð
Skoða eignina Nónhamar 2
Nónhamar 2
221 Hafnarfjörður
109.1 m2
Fjölbýlishús
43
769 þ.kr./m2
83.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin