Fasteignaleitin
Skráð 19. nóv. 2026

Rofabær 45

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
90.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
719.512 kr./m2
Fasteignamat
67.600.000 kr.
Brunabótamat
50.350.000 kr.
Mynd af Arinbjörn Marinósson
Arinbjörn Marinósson
Löggiltur fasteignasali
www.fastlind.isEignalisti
Byggt 1967
2. hæð
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2045276
Landnúmer
111090
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurbætt að hluta
Raflagnir
Endurbætt að hluta
Frárennslislagnir
Endurbætt að hluta
Gluggar / Gler
Sjá viðhaldslýsingu
Þak
Sjá viðhaldslýsingu
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Ofna kynding
Inngangur
Sameiginlegur
LIND fasteignasala og Arinbjörn Marinósson, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3 herbergja 90.2 fm íbúð á 2 hæð við Rofabæ 45 í Árbænum.

Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, 2 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Allar nánari upplýsingar veitir Arinbjörn í síma 822-8574 eða á netfangið arinbjorn@fastlind.is

*** Íbúðin er laus við kaupsamning ***
*** Svefnherbergi rúmgóð með góðu skápaplássi ***
*** Húsið hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin ***
*** Ísskápur og uppþvottavél geta fylgt með ***
*** Fasteignamat fyrir 2027 er kr. 68.050.000 ***


Nánari lýsing:
Forstofa: Komið er inn í opið forstofuhol með fatahengi.
Stofa / borðstofa: Rúmgóð, björt og opin stofa sem býður uppá ýmsa möguleika. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar suðursvalir.
Eldhús: Rúmgott eldhús með borðkrók, eldhúsið er opið í tvo enda. Innrétting með miklu skúffu- og skápaplássi, flísalagt milli innréttinga. Blástursofn, spanhelluborð, uppþvottavél og ísskápur.
Svefnherbergi I & II: Rúmgott hjónaherbergi með stórum fataskápum ásamt góðu barnaherbergi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtu, upphengt salerni og baðinnrétting þar sem gert er ráð fyrir þvottavél.
Geymsla: Á jarðhæð hússins er 4,6fm. geymsla sem tilheyrir íbúðinni.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús er á jarðhæð hússins ásamt hjóla- og vagnageymslu.
Garður: Framan við húsið er stór og snyrtilegur garður með skemmtilegum leikvelli fyrir börn ásamt fótbolta- / körfuboltavelli.

Húsið hefur fengið mikla yfirhalningu á síðustu árum:

2017-2018:
- Þak yfirfarið og skipt var um þakjárn og járnrennur.
- Gluggum skipt út á austur- og suðurhlið að undanskildum gluggum sem eru inni á svölum.
- Múrviðgerðir á norður- og vesturhlið hússins ásamt málun.
- Sameiginlegri rafmagnstöflu í Rofabæ 45 skipt út. Settir nýjir dyrasímar ásamt ljósaskynjurum.
- Nýjir póstkassar.
- Hurðum á ruslakompu og hjólageymslu var skipt út.
- Sameiginlegt leik- og útivistarsvæði tekið í gegn, endurnýjaður gróður og leiktæki.

2023-2024
- Svalir rifnar niður og endursteyptar
- Sett upp nýtt svalahandrið með álprófílum og hertu gleri.
- Suðurhlið klædd með áli að undanskildum flötum inni á svölum.
- Svalahurðum skipt út og gluggum sem eru inni á svölunum.

Eignin er vel staðsett og stutt í helstu þjónustu svo sem leikskóla, grunnskóla, matvöruverslanir, íþróttaaðstöðu og fleira.

 
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan,
Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.

 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali metur eignina með sjónskoðun.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

-----------------------------------------------------------------------
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila 
    Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
13/04/202667.600.000 kr.63.500.000 kr.90.2 m2703.991 kr.Já
18/12/201520.050.000 kr.23.990.000 kr.90.2 m2265.964 kr.Já
06/01/201418.300.000 kr.18.500.000 kr.90.2 m2205.099 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hraunbær 190
Skoða eignina Hraunbær 190
Hraunbær 190
110 Reykjavík
92,9 m2
Fjölbýlishús
312
688 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3b-HLUTDEILDARLÁN
Jöfursbás 3b-HLUTDEILDARLÁN
112 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
312
872 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 5B
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 5B
Jöfursbás 5B
112 Reykjavík
106,8 m2
Fjölbýlishús
312
842 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Jöfursbás 3B
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 3B
Jöfursbás 3B
112 Reykjavík
96,5 m2
Fjölbýlishús
312
932 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin