Sveinn Gíslason og RE/MAX kynna 4-5 herbergja einbýlishús á þremur hæðum að Sogavegi 129 í Fossvoginum. Fallegt útsýni er til norðurs, björt og skemmtileg eign á þessum vinsæla stað. Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla og grunnskóla ásamt íþróttasvæði Víkings. Allar upplýsingar veitir Sveinn Gíslason lögmaður/löggiltur fasteignasali
sveinn@remax.is sími
859-5559.
Eignin skiptist í 60 fm 1. hæð, 37 fm rishæð (golfflötur um 56 fm) og 56 fm kjallara sem hægt er að leigja út sem íbúð.
Skoðaðu eignina hér í 3D
Náðu í söluyfirlit hér
Nýlegar framkvæmdir: fyrri eigandi skipti nýlega um þakjárn og pappa, frárennslis- og neysluvatnslagnir að hluta og raflagnir að töluverðu leiti. Nýlegur sólpallur er umhverfis húsið. Jafnframt skipti fyrri eigandi út eldhúsi, baðherbergi og gestasalerni. Nánari lýsing á eigninni:Komið er inn í forstofu í bíslagi frá hellulögðu upphituðu bílastæði framan við húsið. Dúkur á gólfi í forstofu ásamt litlum forstofuskáp. Komið er inn í hol eignarinnar þar sem gengið er upp á rishæð, í gestasalerni, sjónvarpsherbergi og síðan eldhús. Núverandi eigendur stúkuðu sjónvarpsherbergið af en lítið mál að opna það aftur inn í borðstofu eignarinnar. Nýlegt parket er á öllum gólfum hæðarinnar. Eldhúsið er með brúnni hnotu innréttingu, innbyggðri uppþvottavél og dökkum steini á bekkjum. Eyjan er með span-helluborði og steini á bekkjum. Hvít innrétting upp í loft með innbyggðum ísskáp, sér frysti og tveimur bakaraofnum. Útgengt er út um tvöfalda hurð út á austur svalir og þaðan eru tröppur niður á sólpall. Gestasalerni er með upphengdu salerni og hvítri innréttingu með speglaskáp.
Gengið er upp viðarstiga á efri hæð eignarinnar. Viðarparket er á öllum rýmum nema baðherbergi, þar er dúkur. Þrjú rúmgóð svefnherbergi eru á hæðinni. Útgengt er út á svalir úr vesturherbergi. Endurnýjað baðherbergi er á hæðinni með upphengdu salerni, sturtuklefa, handklæðaofni og rúmgóðri viðarinnréttingu. Einnig er hvít innrétting þar sem gerir ráð fyrir þvottavél og barkalausum þurrkara.
Kjallari eignarinnar er innréttaður sem íbúð sem eftir er að klára. Í dag er þar bráðabirgða eldhús, stofa og tvö svefnherbergi. Rýmið býður upp á mikla möguleika þar sem þar er sér inngangur.
Kostnaður kaupanda:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.