Fasteignaleitin
Opið hús:24. júní kl 16:00-16:30
Skráð 18. júní 2026

Hlaðbrekka 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
212.7 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
516.690 kr./m2
Fasteignamat
126.200.000 kr.
Brunabótamat
102.000.000 kr.
Mynd af Brynjar Ingólfsson
Brynjar Ingólfsson
Löggiltur fasteignasali
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2061627
Landnúmer
114631
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Eignin er mikið upprunaleg og þörf á alhliða viðgerðum / endurbótum.
RE/MAX / Brynjar Ingólfsson kynnir: Parhús á tveimur hæðum við Hlaðbrekku 14 í Kópavogi, byggt árið 1975, samtals 212,70 m² að stærð, auk rúmgóðs óskráðs rýmis sem nýtt er sem sjónvarpsherbergi og geymsla á neðri hæð. Eignin er því nær 243 m².

Eignin býður upp á fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi. Bílskúr fylgir eigninni. Húsið er að mestu upprunalegt og þarfnast viðhalds, sem gefur nýjum eigendum tækifæri til að móta eignina eftir eigin smekk og þörfum og skapa sér nútímalegt og bjart heimili á eftirsóttum stað.

- Fasteignamat 2027 - kr. 130.250.000

Myndir í auglýsingu eru bara af efri hæðinni.

Efri hæð
Aðalrými eignarinnar með stofu, eldhúsi, hjónaherbergi og baðherbergi.
Anddyrið er rúmgott með skápum og hengi.
Hol: Rúmgott hol sem hægt er að nýta fyrir skrifborð eða sjónvarp.
Eldhús: Eldhúsið er með eldri hvítri innréttingu, efri og neðri skápum, innbyggðum ofni og helluborði. Parket á gólfi. Stórt búr/geymsla er innaf eldhúsi með hillum og góðu geymsluplássi.
Stofa og borðstofa: Stórt og bjart alrými með parketi á gólfi og áberandi bjálkum í lofti. Gluggar veita góða birtu og skapa notalega stemningu. Nægilegt pláss er fyrir bæði setustofu og borðstofu. Hringstigi liggur frá stofu niður á neðri hæð í sjónvarpsherbergið.
Hjónaherbergi: Eitt af svefnherbergjum eignarinnar er á efri hæð, með parketi á gólfi og góðri birtu. Fataskápur er til staðar.
Baðherbergi: Baðherbergi á efri hæð með baðkari og sturtu. Flísalagt í hólf og gólf.

Neðri hæð
Inngangur eignarinnar, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og rúmgott óskráð rými.
Anddyri: Flísar á gólfi við innganginn, gott pláss fyrir yfirhafnir og skó. Gluggar veita góða birtu.
Svefnherbergi I, II og III: Þrjú svefnherbergi eru á neðri hæð.
Baðherbergi: Sturta, vaskur og klósett. Rýmið er fokhelt og ekki í notkun í dag.
Sjónvarpsherbergi og geymsla: Um 30 m² óskráð rými sem er nýtt sem sjónvarpsherbergi og geymsla. Tengist efri hæð með hringstiga og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.

Bílskúr: Stakstæður bílskúr sem býður upp á geymslu og bílastæði.

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir:
Brynjar Ingólfsson MSc, löggiltur fasteignasali í síma 666 8 999 / brynjar@remax.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1977
24.3 m2
Fasteignanúmer
2061627
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
11.050.000 kr.

Myndir (26)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dalbraut 1
Bílskúr
Opið hús:23. júní kl 17:45-18:15
Skoða eignina Dalbraut 1
Dalbraut 1
105 Reykjavík
85.4 m2
Fjölbýlishús
211
667 þ.kr./m2
57.000.000 kr.
Skoða eignina Vallartún 6 íbúð 202
Vallartún 6 íbúð 202
600 Akureyri
116.4 m2
Fjölbýlishús
413
687 þ.kr./m2
79.990.000 kr.
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
1.jpg
Skoða eignina Lofnarbrunnur 1
Lofnarbrunnur 1
113 Reykjavík
159.5 m2
Fjölbýlishús
423
720 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Árskógar 8
Bílastæði
Opið hús:22. júní kl 12:15-12:45
Skoða eignina Árskógar 8
Árskógar 8
109 Reykjavík
74.2 m2
Fjölbýlishús
211
929 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin