Mjög skemmtilegt 103,1m2 endaraðhús á einni hæð á vinsælum stað í Giljahverfi. **** Eignin getur verið laus við undirritun kaupsamnings ****
Eignin skiptist í forstofu, þvottahús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi ( eitt er teiknað sem geymsla en nýtist sem svefnherbergi), stofu, eldhús og sólstofu ( upphitað rými, hátt til lofts) sem er út úr stofu. Úr sólstofu er gengið út á sólpall til vesturs. Tvö bílastæði framan við húsið fylgja eigninni.
Forstofa er flísalögð, Þar er hiti í gólfi, skápur. Þvottahús er flísalagt. Þar er sprautulökkuð innrétting og opnanlegur gluggi. Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Sturta, innrétting er sprautulökkuð í ljósum lit. Hjónaherbergi er parketlagt og með góðum fataskáp. Stofa er parketlögð og úr henni er gengið út í rúmgóða sólstofu þar sem er hátt til lofts með flísum á gólfi, ofn er þar og hurð út á pall. Eldhús er með flísum á gólfi. Innrétting er ljós og flísar eru á milli efri og neðri skápa. Uppþvottavél og ísskápur fylgja eigninni við sölu. Svefnherbergin eru þrjú en þarf af er eitt af þeim geymsla á teikningum en nýtist sem herbergi í dag, fataskápur í einu þeirra og parket á gólfum. Geymsluloft er yfir stórum hluta af eigninni, uppganga er á gangi. Sólpallur snýr til vesturs og er steyptur með viðar-skjólgirðingu. Afar skjólsæll og gróinn garður.
Annað: - Ljósleiðari komin í hús en ekki tengdur. - Bílastæði fyrir framan hús. - Geymsluskúr á lóð. - Eignin er í einkasölu á FS fasteignir ehf
Á baðherbergi er skemmd við lofttúðu, sem á eftir að laga í lofti. Búið er að laga túðu og skipta um rör.
Merkigil 24, 603 Akureyri

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.