Fasteignaleitin
Skráð 9. apríl 2024

Ásgarðsvegur 9

Tví/Þrí/FjórbýliNorðurland/Húsavík-640
168.6 m2
4 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
58.500.000 kr.
Fermetraverð
346.975 kr./m2
Fasteignamat
41.700.000 kr.
Brunabótamat
69.950.000 kr.
Mynd af Hermann Aðalgeirsson
Hermann Aðalgeirsson
Löggiltur fasteignasali
www.logeign.isEignalisti
Byggt 1942
Jarðhæð af 2
Geymsla 39.2m2
Garður
Pallur
Heitur pottur
Fasteignanúmer
2152362
Landnúmer
150172
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Talið í lagi
Raflagnir
Talið í lagi
Frárennslislagnir
Talið í lagi
Gluggar / Gler
Talið í lagi
Þak
Talið í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Lögeign kynnir eignina Ásgarðsvegur 9, 640 Húsavík, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 215-2362 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Um er að ræða 168.6 M² parhúsaíbúð á tveimur hæðum, byggt árið 1942 úr steypu. Eignin er staðsett miðsvæðis á húsavík og í göngufæri við bæði grunnskóla og leikskóla. Árið 2017 var farið í umfangsmiklar framkvæmdir að innan þar sem m.a. öll efri hæðin var tekin í gegn á smekklegan hátt og loftin einangruð, Árið 2025 var skólp endurnýjað frá húsi og út í brunn ásamt því að það var bætt við brunn. 

Nánari Lýsing: 
Efri hæð: Forstofa, Eldhús, Stofa og sjónvarpsstofa.
 komið er inn í flísalagða forstofu, inn af forstofunni tekur við parketlagður stigi en forstofan er staðsett á miðjupalli. Eldhúsið er bjart og rúmgott. Hvít innrétting bæði með efri og neðri skápum og viðarlituð borðplata. Við innréttinguna er eldhúseyja í sama lit og innréttingin sem er með innskoti fyrir barstóla. Stofan er beint inn af eldhúsinu og er í opnu rými með eldhúsinu sem gefur hæðinni gott flæði ásamt því að margir gluggar eru á hæðinni sem gefur efri hæðinni góða birtu. Stofan er rúmgóð og nýtist bæði sem borðstofa og sjónvarpsstofa. 
Gólfefni: hæðin er öll parketlögð. 

Neðri hæð: Tvö svefnherbergi, gangur, baðherbergi, fataherbergi, geymsla og þvottahús.
Þegar komið er niður stigan tekur við parketlagður gangur sem tengir saman öll rýmin á neðri hæðinni. Á neðri hæðinni eru tvö svefnherbergi sem eru bæði rúmgóð, engir fataskápar eru í herbergjunum en búið er að útbúa sér fataherbergi inn af ganginum sem er með tveimur stórum hvítum fataskápum. Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum að hluta, baðkar, frístandandi wc, "walk in" sturta og hvít innrétting. þvottahúsið er með nýrri innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara sem eru í vinnuhæð, útgengt er úr þvottahúsinu út í garð. á ganginum ásamt baðherbergi er búið að setja hita í gólf.
Skúr(39,2 M²): Rúmgott svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, forstofa/herbergi og geymsla.
Geymsla: þegar komið er inn í skúrinn er rúmgóð forstofa/herbergi, búið er að koma vatnslögnum inn í geymsluna sem eru staðsettar í því rými. inn af því tekur við lítill eldhúskrókur sem er með nýrri innréttingu og inn af því síðan rúmgott svefnherbergi ásamt baðherbergi sem er með flísum á gólfi, sturtuklefa, wc og hvítri vaskainnréttingu. Búið er að stúka af part að skúrnum og gera sér inngang þar inn og er það rými notað í dag undir vinnustofu. 

Að utan: gróinn garður er í kringum húsið, sólpallur fyrir framan bílastæðið ásamt því að stór sólpallur er við skúrinn ásamt heitum pott. Hellulagt bílastæði með hitalögn. 

Endurbætur: 
árið 2006: bílastæði hellulagt og sett hitalögn.
árið 2010: rafmagnstafla færð og endurnýjuð.
árið 2013: skipt um parket á neðri hæð.
árið 2014: settur varmaskiptir og ofnalagnir endurnýjaðar ásamt flestum ofnum. 
árið 2014: baðherbergi tekið í gegn og síðan aftur að hluta árið 2022 og var þá skipt út flísum á gólfi, veggur sem snýr að svefnherbegi klæddur upp á nýtt og ný innrétting. 
árið 2016: allt gler endurnýjað nema í þvottahúsi. 
árið 2017: var öll efri hæðin tekin í gegn og sett ný eldhús innrétting, gólfefni, ný ull sett í loftin og rakaplast og skipt um handrið á stiga milli hæða. 
árið 2018: var sett girðing í kringum bakgarðinn og settur garðkofi. 
árið 2019: var skipt um gras á hluta af baklóðinni og molta notuð í undirlag. 
árið 2022: voru gluggar bæði í þvottahúsi og fataherbergi endurnýjaðir. 
Allar fráveitulagnir hafa verið endurnýjaðar með pvc. 
árið 2025: var klóak frá húsi og út í götu endurnýjað og bætt við brunn. 
árið 2025: var húsið málað að utan ásamt þaki. 
árið 2025: ný innrétting sett í þvottahúsið og ný eldhúsinnrétting inn í skúr. 
árið 2026: var húsið málað að innan.




Nánari upplýsingar veitir Hermann Aðalgeirsson lgf. í síma 865-7430 eða netfanginu Hermann@logeign.is og Hinrik Marel Jónasson Lund lgf., í síma 835-0070 eða netfanginu hinrik@logeign.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/07/202433.500.000 kr.41.000.000 kr.168.6 m2243.179 kr.Já
25/09/201713.750.000 kr.27.500.000 kr.168.6 m2163.107 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1978
39.2 m2
Fasteignanúmer
2152362
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
12.250.000 kr.

Myndir (28)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vorbraut 14 íb 402
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:08. okt. kl 17:00-17:30
Vorbraut 14 íb 402
210 Garðabær
167,5 m2
Fjölbýlishús
322
1313 þ.kr./m2
219.900.000 kr.
Skoða eignina Langabrekka 10a
Bílskúr
Skoða eignina Langabrekka 10a
Langabrekka 10a
200 Kópavogur
164,4 m2
Fjölbýlishús
624
760 þ.kr./m2
124.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 31 Íb 204
Bílastæði
Hringhamar 31 Íb 204
221 Hafnarfjörður
107,6 m2
Fjölbýlishús
413
743 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 5 íb. 402
Hringhamar 5 íb. 402
221 Hafnarfjörður
104,9 m2
Fjölbýlishús
413
733 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin