Fasteignaleitin
Opið hús:10. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 5. ágúst 2026

Stekkjarflöt 12

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
192 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
165.000.000 kr.
Fermetraverð
859.375 kr./m2
Fasteignamat
154.050.000 kr.
Brunabótamat
96.960.000 kr.
Mynd af Sigríður Rut Stanleysdóttir
Sigríður Rut Stanleysdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1965
Garður
Pallur
Bílskúr
Á einni hæð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2072310
Landnúmer
119514
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
endurnýjað að hluta
Raflagnir
upprunarlegt
Frárennslislagnir
endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
tvöfalt gler
Þak
sjá yfirlýsingu seljanda um ástand eignarinar
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
verönd
Upphitun
hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Fyrirhugaðar framkvæmdir
sjá nánar yfirlýsingu seljanda sem er fyllt út af dóttir seljandans 
Gallar
skipta þarf um þakrennur og útidyrahurð. Sjá nánar inná yfirlýsingu seljanda um ástand eignarinar 
Fasteignasalan TORG kynnir: Fallegt, bjart og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð á fallegri lóð og mjög vel staðsett. Það er að hluta upprunalegt en hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina, aðeins einn eigandi. Möguleiki er að stækka húsið. Í dag eru 3 svefnherbergi, en möguleiki er t.d. að breyta sjónvarpsherbergi í herbergi. Að auki er 1 herbergi/geymsla inn af þvottaherberginu. Eignin gæti losnað fljótt. 
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir, löggiltur fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is

 
Nánari lýsing:
Forstofa við aðalinngang: Komið er inn í forstofu með fatahengi og flísalögðu gólfi.
Inn af forstofu er góð miðja sem rýmir meðal annars sjónvarpsstofuna sem hægt væri að stúka af og breyta í auka svefnherbergi. Útgengt er á timburverönd frá sjónvarpsherberginu. Beint á móti forstofunni er stofa og borðstofa, eldhús á hægri hönd og svefnherbergisgangur á vinstri hönd. 
Forstofa við eldhúsinngang: Komið er inn í forstofu með flísalögðu gólfi og fataskáp, úr henni er inngangur í eldhús, þvottaherbergi, búr og bílskúr.
Eldhús: Innrétting U-laga sem hefur verið endurnýjuð ásamt eldhústækjum. Ofn í vinnuhæð, tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur við glugga, parket á gólfi. Inn af eldhúsi er komið inn í forstofu við eldhúsinngang.
Stofa/borðstofa: Eru rúmgóðar og bjartar. Arinn er í stofunni. Eitt þrep er frá borðstofu í stofuna. Parket á gólfi. Góðir gluggar sem veita góða birtu. Útgengt er út á timburverönd sem er að hluta yfirbyggð.
Aðalbaðherbergi:  Hefur verið endurnýjað, vaskur, salerni, baðkar og veggskápur. Veggir, gólf og loft flísalagt.
Svefnherbergisgangur: 3 svefnherbergi. Parket er á gólfi og útgengt frá svefnherbergisgangi út á timburverönd sem er að hluta yfirbyggð.
Hjónaherbergi: Er með rúmgóðum fataskápum og parketi á gólfi. Inn af svefnherberginu er sér baðherbergi með sturtu.
Baðherbergi inn af hjónaherbergi: Flísalagt baðherbergi með vaski, salerni og sturtu. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Eru bæði með parket á gólfi og fataskápum.
Þvottaherbergi: Er rúmgott, með innréttingu, vaski, lokuðum skápum og tengi fyrir þvottavél sem og aðstöðu fyrir þurrkara. Flísalagt gólf, útgengt í garð. Inn af þvottaherberginu er aukaherbergi/geymsla.
Búr: Lítið herbergi með hillum.
Bílskúr: Er með sjálfvirkri hurð, rafmagni og tengi fyrir vask.
Heimkeyrslan er upphituð.
Garður er afar fallegur og skjólgóður í góðri rækt.
Eignin er einstaklega vel skipulögð og vel staðsett á eftirsóttum stað í Garðabæ. Húsið er steinsnar frá íþróttasvæði Stjörnunnar og Flataskóla. Barnvænt hverfi.
Möguleiki er að stækka húsið. Nýtingarhlutfall hússins má vera allt að 0,35% af stærð lóðar. Nýtingarhlutfall er núna 0,22%. Hægt er að lesa nánar um skilmála inni á kortavefnum www.map.is/gardabaer undir deiliskipulag.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Rut Stanleysdóttir fasteignasali í gsm. 699-4610 eða siggarut@fstorg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila,
en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða.
Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og
ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1965
23.7 m2
Fasteignanúmer
2072310
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
7.510.000 kr.

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsbúð 39
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Holtsbúð 39
Holtsbúð 39
210 Garðabær
180.2 m2
Einbýlishús
514
921 þ.kr./m2
165.900.000 kr.
Skoða eignina Rjúpnahæð 14
Á einni hæð
Hleðslustöð
Skoða eignina Rjúpnahæð 14
Rjúpnahæð 14
210 Garðabær
262.6 m2
Einbýlishús
524
910 þ.kr./m2
239.000.000 kr.
Skoða eignina Sæbólsbraut 34
Bílskúr
Skoða eignina Sæbólsbraut 34
Sæbólsbraut 34
200 Kópavogur
360.1 m2
Einbýlishús
524
691 þ.kr./m2
249.000.000 kr.
Skoða eignina Mýrarland 14
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Hleðslustöð
Skoða eignina Mýrarland 14
Mýrarland 14
800 Selfoss
176.7 m2
Einbýlishús
524
622 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin