Fasteignaleitin
Skráð 26. okt. 2025

SPÁNAREIGNIR - Lomas De Cabo Roig

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
139 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
29.400.000 kr.
Fermetraverð
211.511 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2028201
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Suðursvalir
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *NÝ PENTHOUSE ÍBÚÐ MEÐ 18 FM SVÖLUM OG 55FM ÞAKSVÖLUM MEÐ ÚTSÝNI TIL SJÁVAR OG YFIR SUNDLAUGARGARÐINN* *LYFTUHÚS OG HÆGT AÐ KAUPA STÆÐI Í BÍLAGEYMSLU* *SUNDLAUG OG GRÆN SVÆÐI* *GÖNGUFÆRI VIÐ VERSLANIR OG VEITINGASTAÐI, 2KM Á STRÖND* *EINNIG Í BOÐI AÐ KAUPA ÍBÚÐIR Á JARÐHÆÐ EÐA ÍBÚÐIR Á MIÐHÆÐUM MEÐ SVÖLUM TIL SUÐURS*

Vönduð penthouse íbúð á efstu hæð í lyftuhúsnæði, 18 fm svalir og 55 fm þaksvalir með útsýni til sjávar og yfir sundlaugargarðinn. Að auki er sérafnotaréttur af sameign fyrir framan eignina. Forstofa, eldhús og stofa tengjast vel. Ný eldhústæki innifalin í verði. Tvö rúmgóð svefnherbergi með góðu skápaplássi. Tvö baðherbergi, annað þeirra inn af svefnherbergi.
Til afhendingar í haust 2026. 

Íbúðirnar eru staðsettar á frábærum stað í hinu vinsæla Lomas de Cabo Roig hverfi, örstutt frá góðum golfvöllum, ca. 50 mín akstur frá Alicante flugvelli. 2km fjarlægð frá strönd og 20-30 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, vinsælustu verslunarmiðstöðina á svæðinu. Örstutt göngufæri í verslanir og veitingastaði. Gróið og fallegt umhverfi. Einstakt tækifæri til að eignast íbúð á góðu verði í frábæru umhverfi. Frábær fjárfesting, til útleigu og til að eyða frídögunum, eða til að búa í allt árið.

Allar upplýsingar veita:
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, sími 0034 615 112 869 , berta@spanareignir.is
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali, sími 00354 8932495, adalheidur@spanareignir.is


Verð: 202.500 evrur.
Mögulegt að fá lán fyrir allt að 70%. Lítil útborgun sem fæst endurgreidd ef lánsumsókn er ekki samþykkt.


Einnig eru aðrar eignir í boði í húsinu:
Íbúðirnar eru með einu eða tveimur svefnherbergjum og einu eða tveimur baðherbergjum, anddyri, góðri stofu/alrými og fallegu eldhúsi. Hægt er að velja íbúðir á jarðhæð, með sér garði, miðhæðum með svölum eða á efstu hæð og þá með svölum og þaksvölum. Fallegar innréttingar. Góð sameign með sundlaug, fallegum opnum grænum svæðum og leikvelli fyrir börn. Gott sérafnotarými fyrir framan allar íbúðirnar.
MÖGULEIKI Á AÐ KAUPA  STÆÐI Í BÍLAKJALLARA. VERÐ FYRIR STÆÐI FRÁ 8.000 EVRUR + KOSTN.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast rúmgóða og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.
Góðir skólar í næsta nágrenni, bæði spænskir og alþjóðlegir einkaskólar. Góð heilsugæsla í næsta nágrenni.
Rólegur staður en stutt er á fallega hvíta sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.
Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í nágrenninu, t.d. í Lomas de Cabo Roig Center og La Fuente.  Stutt í La Zenia Boulevard, vinsælu verslana, veitingastaða og afþreyingamiðstöðina. 
Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira.
Fjölbreytt úrval golfvalla er í næsta nágrenni, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. 

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.
Kostnaður við kaupin: 10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sameiginlegur sundlaugargarður, suðursvalir, stæði í bílakjallara, þaksvalir,
Svæði: Costa Blanca, Lomas de Cabo Roig, Cabo roig
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stakkholt 4A
Bílastæði
Skoða eignina Stakkholt 4A
Stakkholt 4A
105 Reykjavík
129.8 m2
Fjölbýlishús
413
947 þ.kr./m2
122.900.000 kr.
Skoða eignina Smáratún 20
Bílskúr
Skoða eignina Smáratún 20
Smáratún 20
230 Reykjanesbær
148.3 m2
Fjölbýlishús
413
465 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 46 - Íbúð 201
Stefnisvogur 46 - Íbúð 201
104 Reykjavík
115.1 m2
Fjölbýlishús
413
990 þ.kr./m2
113.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 44 - íbúð 208
Bílastæði
Stefnisvogur 44 - íbúð 208
104 Reykjavík
95.6 m2
Fjölbýlishús
413
899 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin