Fasteignaleitin
Skráð 20. ágúst 2026

Ægisíða 76

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
166.8 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
239.900.000 kr.
Fermetraverð
1.438.249 kr./m2
Brunabótamat
88.350.000 kr.
Byggt 1952
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
202808511
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Eignamiðlun kynnir:

Glæsileg hæð með óhindruðu sjávarútsýni eins og það gerist best. Einstaklega staðsett vönduð eign á mjög eftirsóttum stað með stórbrotnu og óhindruðu sjávarútsýni við Ægisíðu 76, 107 Reykjavík. 
 
Hæðin skiptist í þrjú svefnherbergi, hol, eldhús, stofu, borðstofu, gestasalerni, baðherbergi ásamt sérgeymslu í kjallara. Í bílskúr er nýlega standsett stúdíóíbúð ásamt geymslu.
Húsið er teiknað af Halldóri H. Jónsyni arkitekt.


Nánari lýsing:
Stórglæsileg hæð sem hefur öll verið endurnýjuð í samvinnu við Rut Káradóttur á árunum 2017-2018. Íbúðin er staðsett fyrir miðri götu og fær því stórbrotið útsýni til suðurs, austurs og vesturs. Franskir gluggar.

Góð aðkoma, frágengin og falleg lóð með bílaplani fyrir framan bílskúr.
Gengið er inn í mjög rúmgott hol. 
Herbergi I er í dag nýtt sem fataherbergi en mætti auðveldlega nýta sem svefnherbergi.
Eldhúsið er sérsmíðað með marmara á borðum og milli skápa og SMEG gaseldavél. Mikið skápapláss. Snyrtileg gestasnyrting með vegghengdu salerni og handlaug.
Tvær rúmgóðar samliggjandi stofur með miklu útsýni. Stórir franskir gluggar á þrjá vegu. Úr stofu er gengt út á rúmgóðar svalir.
Herbergi II er rúmgott og með glæsilegu útsýni.
Herbergi III (hjón) er mjög rúmgott og útgengt á svalir.
Baðherbergi hannað af Rut Káradóttir frá hjónaherbergi. Baðherbergið er einstaklega fallegt með sturtu og frístandandi baðkari. Innbyggð blöndunartæki og vegghengt salerni. Innan baðherbergis er aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara.
Gólfefni íbúðar er ljóst eikarfiskibeinaparket fyrir utan baðherbergi og snyrtingu en þar eru flísar.
Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara 10,6 fm. Rúmgóð með stórum opnanlegum glugga og vask og rennandi vatni.

Eigninni fylgir rúmgóður bílskúr. Hann var nýlega innréttaður sem stúdíóíbúð. Íbúðin er snyrtileg og skiptist í opið rými með eldhúsi, baðherbergi og geymslu.

Íbúðin sjálf hefur verið mikið endurnýjuð en m.a. má nefna:
-Sérsmíðað eldhús hannað af Rut Káradóttur.
-Baðherbergi hannað af Rut Káradóttur með sturtu og fallegu baðkari og þvottavél og þurrkara.
-Gólfefni, ljóst eikarfiskibeinaparket.
-Gestasnyrting. -Rafmagn og rafmagnstafla.

Viðhald á ytra byrði:
-Skipt var um rennur og þakrennur árið 2017.
-Skólp og dren var tekið í gegn árið 2019.
-Hellulagður göngustígur var lagður það sama ár og nýtt gras.
-Húsið var múrviðgert og málað árið 2020.
-Árið 2023 var grindverk uppsteypt að nýju og málað og einnig var þakið yfirfarið, settar nýjar skrúfur í þakið og það málað.
-Árið 2021 var skipt um þak á bílskúr og sett ný rafstýrð bílskúrshurð.
-Árið 2021 voru svalahurðir endurnýjaðar.

Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson, löggiltur fasteignasali, í s:824-9093, tölvupóstur: kjartan@eignamidlun.is.
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í s:867-0968, tölvupóstur: unnar@eignamidlun.is.

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Eignamiðlun ehf.
www.eignamidlun.is

Myndir (50)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sigtún 23
sigtun_serh_bilsk.jpg
Skoða eignina Sigtún 23
Sigtún 23
105 Reykjavík
153.5 m2
Hæð
412
846 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Sigtún 23
Hleðslustöð
Skoða eignina Sigtún 23
Sigtún 23
105 Reykjavík
153.5 m2
Hæð
412
846 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 47A
Opið hús:25. ágúst kl 16:00-16:30
Skoða eignina Hjallabraut 47A
Hjallabraut 47A
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Hjallabraut 45
Opið hús:25. ágúst kl 16:15-16:45
Skoða eignina Hjallabraut 45
Hjallabraut 45
220 Hafnarfjörður
157.5 m2
Raðhús
423
1073 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin