HLÍÐARNAR: 4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Í VEL VIÐHÖLDNU HÚSI - Möguleiki að færa eldhús og bæta við þriðja-fjórða herberginu. Baldur fasteignasali, beinn sími 450-0000, kynnir: Í einkasölu fallega og rúmgóða 4ra herbergja íbúð á 1. hæð í vel viðhöldnu fjölbýlishúsi við Eskihlíð 22 í Hlíðunum, 105 Reykjavík.
Íbúðin skiptist í rúmgott miðrými, eldhús, tvö svefnherbergi, samliggjandi stofur (það er hægt að nota aðra stofuna sem þriðja svefnherbergið) og borðstofu með rennihurð á milli og baðherbergi. Úr stofu er útgengt á vestursvalir. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin, meðal annars allsherjar viðhald utanhúss árið 2020, hússjóður stendur vel. Stutt er í Öskjuhlíð, Nauthólsvík, Háskólann í Reykjavík, Klambratún og miðbæ Reykjavíkur.
Stærð eignarinnar er 95,70 fermetrar samkvæmt skráningu HMS. Íbúðinni fylgir jafnframt um 4,6 fermetra sérgeymsla í kjallara samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu, sem er ekki innifalin í skráðri stærð.
Rétt stærð er því uþb. 100,3 fermetrar.Aðal sölupunktar:- Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 1. hæð
- Samliggjandi stofa og borðstofa með rennihurð, borðstofan nýtist vel sem þriðja svefnherbergið
- Möguleiki á að færa eldhús inn í stofu og bæta við svefnherbergi, lagnir eru til staðar og fordæmi eru fyrir því í stigaganginum
- Ssvalir út frá stofu
- Hjónaherbergi uppgert 2024 til 2025
- Rofar og tenglar endurnýjaðir 2023
- Viðhald utanhúss 2020
- Stigagangur tekinn í gegn 2022 og eldvarnir í sameign bættar 2025
- Hússjóður stendur vel
- Sérgeymsla, sameiginlegt þvottahús og hjóla-, vagna- og dekkjageymsla
- Eftirsótt staðsetning í Hlíðunum
Íbúðin skiptist í miðrými/hol, eldhús, stofu, borðstofu, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Þá fylgir íbúðinni jafnframt sérgeymsla í kjallara og hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi, hjóla- og vagnageymslu og dekkjageymslu.
Nánari lýsing:Miðrými / hol: Rúmgott miðrými sem tengir öll rými íbúðarinnar. Fataskápur, flísar við inngang og parket á gólfi.
Eldhús: Hvít innrétting, flísar á milli efri og neðri skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Parket á gólfi.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útgengi á vestursvalir.
Borðstofa: Samliggjandi stofu með rennihurð á milli. Rúmgott rými sem nýtist sem borðstofa eða þriðja svefnherbergið.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, uppgert 2024 til 2025, með góðum fataskápum og nýju parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Herbergi í góðri stærð með fataskáp og parketi á gólfi.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar með sturtugleri, innrétting við handlaug, upphengt salerni og opnanlegur gluggi.
Geymsla: Sérgeymsla í kjallara, um 4,6 fermetrar samkvæmt eignaskiptayfirlýsingu.
Sameign: Sameiginlegt þvottahús og góðar geymslur í sameign: hjóla- & vagnageymsla ásamt hitakompu sem notuð er sem dekkjageymsla.
Viðhald hússins:- 2000: Húsið endursteinað, gler og gluggapóstar endurnýjaðir.
- 2001: Skipt um þakjárn.
- 2011: Þak yfirfarið og málað. Nýtt dyrasímakerfi.
- 2014: Frárennslislagnir fóðraðar/endurnýjaðar.
- 2017: Þak yfirfarið og málað.
- 2018: Sameign og kjallari yfirfarin og máluð.
- 2020: Viðhald utanhúss. Húsið háþrýstiþvegið, endursteinað, múr- og sprunguviðgert og sílanborið. Sléttir fletir, tréverk og hurðir málaðir, gert við kanta, vatnsbretti, svalir og svalahandrið, þakkantur endurbættur og skipt um þá glugga og botnlista sem þurfti.
- 2022: Stigagangur tekinn í gegn, skipt um teppi og málað.
- 2025: Eldvarnir í sameign yfirfarnar og bættar.
Endurbætur á íbúð:- 2019: Nýr gluggi í borðstofu og geymslu, aðrir gluggar yfirfarnir.
- 2023: Skipt um rofa og tengla.
- 2024 til 2025: Hjónaherbergi uppgert.
Hússjóður: Hússjóður stendur vel. Rætt hefur verið um að malbika bílaplan á næstu árum.
Húsið: Eskihlíð 22 er steinsteypt fjögurra hæða fjölbýlishús byggt 1957.
Staðsetning: Hlíðarnar eru eitt eftirsóttasta hverfi borgarinnar og þaðan er stutt í allar áttir. Í næsta nágrenni eru Öskjuhlíð og Nauthólsvík með ylströndinni, Háskólinn í Reykjavík og Klambratún, og stutt er í Kringluna, skóla, leikskóla, alla helstu þjónustu og miðbæ Reykjavíkur.
Falleg og vel skipulögð íbúð í vel viðhöldnu húsi á frábærum stað í Hlíðunum.
Nánari upplýsingar veitir:Baldur Jezorski, löggiltur fasteignasali
baldur@fastgardur.is / Beinn sími 450-0000Skoða meðmæli -
Verðmat fasteigna -
Greiðslumat.is -
Að selja hjá Baldri