Fasteignaleitin
Skráð 25. sept. 2026

Mosgerði 10

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
180.4 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
154.900.000 kr.
Fermetraverð
858.647 kr./m2
Fasteignamat
122.350.000 kr.
Brunabótamat
95.900.000 kr.
Mynd af Björgvin Þór Rúnarsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Fasteignasali
8551544www.primafasteignir.isEignalisti
Byggt 1960
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2034996
Landnúmer
108135
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Holsteinn
Númer hæðar
01
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Skipt um að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Yfirfarið
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna eignina Mosgerði 10, 108 Reykjavík, 

Staðsetning er frábær í rólegri götu á jaðarlóð.
Mosgerði 10, vönduð og mikið endurbætt eign þar sem eigendur hafa frá árinu 2018 ráðist í umfangsmiklar framkvæmdir og endurbætur, jafnt að innan sem utan.
Mikil áhersla hefur verið lögð á viðhald, endurnýjun og aukin lífsgæði, þar á meðal gólfhita, endurbætur á eldhúsi, rafmagni og einangrun, nýjan stóran pall, endurbætur á sólstofu, múrviðgerðir, glugga, hellulagða stétt og snjóbræðslu.
Eignin býður því upp á afar áhugaverða heild fyrir þá sem vilja húsnæði þar sem mikið hefur þegar verið lagt í viðhald og endurbætur.

MIKIÐ ENDURNÝJUÐ EIGN  (skjal með upptalningu á endurbótum eiganda fylgir með söluyfirliti)

Nánari Lýsing:
Mið hæð: Komið er inn í forstofu, gestasnyrting við hlið forstofu með upphengdu salerni.
Rúmgott  hjónaherbergi með góðum fataskápum. Barnaherbergi með gluggum á tvo vegu.
Baðherbergi með flísalögðu gólfi, sturtu, upphengdu salerni og opnanlegum glugga.
Rúmgott og bjart eldhús sem er samliggjandi við borðstofu. Á  þessari hæð er einnig stofa og rúmgóð sólstofa. 
Úr sólstofunni er gengt í lokaðan garðskála sem snýr að bakgarði og hægt að opna eina hlið hans út á verönd. Veröndin er er mjög skjólsæl og aflokuð og er heitur pottur á henni.
Rishæð: 
Stigi lagður með teppi liggur upp á rishæðina. Þar er eitt gott svefnherbergi og annað mjög rúmgott rými sem nýta má sem svefnherbergi eða sjónvarpshol. Súðgeymslur eru með veggjum.
Kjallari:  Stigi er niður í kjallarann og einnig er gengt inn í hann úr garði. Eitt svefnherbergi er þar, tvær geymslur, þvottahús með glugga og skolvaski og miðrými með hurð út í garðinn.  
Húsinu fylgir stór (42,7 fm)  bílskúr með vatni, rafmagni og hita. Gróinn garður og stór verönd í bakgarði.

Mosgerði 10 hefur fengið markvisst og umfangsmikið viðhald frá árinu 2018, þar sem ráðist hefur verið í fjölmargar framkvæmdir ssem enn standa yfir sem snúa bæði að útliti, tæknilegum þáttum og daglegum þægindum.
Sérstaklega má nefna gólfhita, endurbætt rafmagn, einangrun og hljóðvist, endurbætur á eldhúsi og sólstofu, um 100 fm pall, snjóbræðslu og hellulagða stétt, auk fjölmargra utanhússframkvæmda.
Hér er því um að ræða eign sem hefur fengið mikla umhirðu og þar sem eigendur hafa á undanförnum árum lagt verulega vinnu og mikla fjármuni í endurbætur og viðhald.
Mosgerði 10 er spennandi kostur fyrir þá sem vilja rúmgott og mikið endurbætt heimili þar sem stór hluti umfangsmikilla framkvæmda síðustu ára hefur þegar verið unninn.

Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/07/201859.300.000 kr.71.500.000 kr.180.4 m2396.341 kr.Já
23/12/201129.900.000 kr.36.750.000 kr.180.4 m2203.713 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1983
42.7 m2
Fasteignanúmer
2034996
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.850.000 kr.

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grenilundur 2
Á einni hæð
Opið hús:30. sept. kl 16:30-17:00
Skoða eignina Grenilundur 2
Grenilundur 2
210 Garðabær
184.5 m2
Einbýlishús
524
970 þ.kr./m2
178.900.000 kr.
Skoða eignina Kvistavellir 70
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Kvistavellir 70
Kvistavellir 70
221 Hafnarfjörður
180.3 m2
Raðhús
514
720 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Laugavegur 168 íb 312 - Heklureitur
Opið hús:27. sept. kl 13:00-14:00
Laugavegur 168 íb 312 - Heklureitur
105 Reykjavík
196.4 m2
Fjölbýlishús
312
534 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Birkimói 7
Á einni hæð
Opið hús:26. sept. kl 12:00-13:00
Skoða eignina Birkimói 7
Birkimói 7
815 Þorlákshöfn
171.4 m2
Raðhús
523
671 þ.kr./m2
115.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin