Helgafell fasteignasala kynnir glæsilegt 226,6fm einbýlishús við Valsheiði 30 í Hveragerði.
Íbúðahlutinn er 180,8fm og innbyggður bílskúr er 45,8fm.
Húsið telur fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, alrými, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús og bílskúr.
Allir gluggar, svala- og útihurðir ásamt bílskúrshurð eru úr harðvið.
Gólfhiti er í öllu húsinu. Harðparket á gólfi nema í votrýmum. Epoxíð á gólfi í bílskúr.
Led lýsing í þakkanti.
Lýsing:Anddyri: komið er inn í rúmgott flísalagt anddyri með tveimur þreföldum skápum.
Baðherbergi: Inn af anddyri er baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, "walk-in" sturta, upphengt salerni.
Alrými: Úr anddyri er komið í alrými með harðparketi á gólfi, í dag er það nýtt sem sjónvarpshol.
Eldhús: Opið við stofu, stór eyja sem hægt er að sitja við og með góðu borðplássi. Gott skápapláss. Pláss fyrir tvöfaldan ísskáp. Nýleg
Smeg gaseldavél með sex brennurum og 90cm breiðum ofn. Pláss fyrir uppþvottavél sem má fylgja með. Eldhúsinnréttingin er nýlega lökkuð og með nýlega borðplötu.
Stofa: Harðparket á gólfi, innbyggð kamína. Útgengt út á stóran pall um tvöfalda svalahurð.
Hjónaherbergi: Fataherbergi er í hjónaherbergi og útgengt út á pall.
Þrjú barnaherbergi: Öll með harðparket á gólfi og tvö af þeim með skáp.
Baðherbergi: Rúmgott, flísalagt í hólf og gólf. Rúmgóð "walk-in" sturta, upphengt salerni, handklæðaofn og stór skápur undir vask.
Þvottahús: Stórt þvottahús með flísum á gólfi. Mikið skápapláss. Handklæðaofn. Útgengt út í garð með þvottasnúrum úr þvottahúsi.
Bílskúr: Mjög rúmgóður 45,8fm bílksúr með epoxíð á gólfi. Heitt og kalt vatn, stór bílskúrshurð úr harðvið 395cm x 258cm. Útgönguhurð er úr bílskúrnum við hlið inngang hússins.
Lóðin er 756,1fm. og er stór pallur er við suður og vesturhlið hússins. Búið er að koma fyrir grillaðstöðu á pallinum sem eigandi ætlar að mála fyrir afhendingu. Heitur pottur á pallinum með Danfoss hitastýringu. Útgengt er á pallinn úr stofu og hjónaherbergi. Um 14fm geymsluskúr er í garðinum. Innkeyrslan er steypt og er hiti í henni. Flaggstöng í garðinum.
Eigendur skoða skipti á eign á Höfuðborgarsvæðinu
Smelltu hér til að opna söluyfirlitFyrir nánari upplýsingar:
Helgafell fasteignasala, S: 566 0000Rúnar Þór Árnason lgf., sími: 775 5805 / runar@helgafellfasteignasala.is
María Steinunn Jóhannesdóttir lgf., sími: 849 5002 / maria@helgafellfasteignasala.is