Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu
HJALTABAKKI 22, 109 Reykjavík. Um er að ræða fjögurra herbergja íbúð með vestursvölum á 3. hæð í vel við höldnu fjölbýlishúsi. Hverfið er fjölskylduvænt og stutt er í leik- og grunnskóla, versalnir og þjónustu. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign hússins eru þvottahús, þurrkherbergi og hjóla- og vagnageymsla. Íbúðinni fylgja sérgeymsla í kjallara og sérmerkt bílastæði.
Frábær fjölskyldueign sem hentar einnig vel til fyrstu kaupa.
Eignin er skráð alls 105,5 fm. samkvæmt HMS. - Smelltu hér til að sækja söluyfirlitNánari lýsing:
Forstofa: Nýleg eldvarnarhurð er á milli forstofu og stigagangs. *Skóhilla getur fylgt með við sölu.
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með samliggjandi borðstofu og útgengi á vestursvalir.
Eldhús: Innrétting með flísum á milli skápa, eldavél og tengi fyrir uppþvottavél. *Uppþvottavél og ísskápur geta fylgt með við sölu.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð og björt svefnherbergi. Öll herbergin eru með fataskápum. *Nýlega var skipt um hurðir á öllum skápunum.
Baðherbergi: Gólfið er flísalagt og veggirnir eru flísalagðir að hluta. Baðkar með sturtu, innrétting og nýlegt salerni ásamt tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svalir: Vestursvalir með útsýni yfir sameiginlegan garð.
Gólfefni íbúðar: Parket er á öllum gólfum íbúðarinnar að undanskildu baðherbergi, þar eru flísar.
Geymsla: 9,2 fm. sérgeymsla í kjallara.
Bílastæði: Sérmerkt bílastæði.
Sameign: Tvö íbúðarherbergi sem eru í útleigu á vegum húsfélags.
Þvottahús og þurrkherbergi í kjallara, þar sem býðst að hafa eigin vélar.
Hjóla- og vagnageymsla og
sorpgeymsla eru á jarðhæð.
Viðhald og endurbætur:Þakjárn ryðvarið og málað, þakgluggar endurnýjaðir, þakkantur lagaður og endurmálaður, þakrennur endurnýjaðar, snjógildrur settar til varnar þakrennum og umferð um útihurðir.
Gluggar og klæðningar við glugga endurnýjaðar.
Múrviðgerðir og málun húss að utan.
Skipt var um salerni inn á baðherbergi.
Skipt var um allar hurðir innan íbúðar auk svalahurðar.
Skipt var um parket á gólfum.
Skipt var um ofna í stofu og eldhúsi.
Allar nánari upplýsingar veita:
Anton Y. Sakornram, aðstoðarmaður fasteignasala,
s. 779-5463 /
anton@trausti.isKristján Baldursson, löggiltur fasteignasali,
s. 867-3040 /
kristjan@trausti.isBóka verðmat -
www.trausti.is -
Trausti á Facebook