Gimli fasteignasala og Daði Runólfsson kynna: Kóngsbakki 5, 109 Reykjavík. Falleg og björt 87,4 fm 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í kjallara.Smellið hér fyrir myndband af eigninniNánari lýsing: Komið er inn í rúmgóða
forstofu. Hún er opin inn í
borðstofu og stofu sem er mjög bjart og rúmgott rými.
Eldhúsið er allt hið snyrtilegasta með tengi fyrir uppþvottavél og nýlegum bakarofni, borðstofan er fyrir miðju rými og þaðan er opið inn í stofu, út frá stofu er útgengt á góðar suðvestursvalir.
Tvö góð svefnherbergi, annað með skápum.
Baðherbergið er með upphengdu salerni, baðkari með sturtu og góðum innréttingum. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum.
Nýlegt parket er á öllum rýmum, nema á baðherbergi eru flísar.
Sameign: Sérgeymsla og sameiginleg hjóla/vagnageymsla og hitaherbergi er í kjallara. Stigagangur er snyrtilegur og rúmgóður. Lóðinni er vel við haldið með útivistarsvæði.
Hér er stutt í alla þjónustu og almenningssamgöngur og er eignin á góðum stað í Bökkunum.
Framkvæmdir: Nýlega var húsið málað og gluggaskipti gerð á völdum gluggum á norður- og austurhlið, auk viðgerða á svalaveggjum og gólfi.
Eignin Kóngsbakki 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 204-8361, birt stærð 87.4 fm. Nánar tiltekið eign merkt 02-07, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Nánari upplýsingar veitir: Daði Runólfsson Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6981164, tölvupóstur dr@gimli.is eða
gimli@gimli.isGimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta.
Gimli, gerir betur...Gimli er staðsett í Skipholti 15, 105 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isHeimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.