Hraunhamar fasteignasala kynnir bjarta og fallega fjögurra herbergja íbúð á 3.hæð í lyftuhúsnæði vel staðsettu á þessum fjölskylduvæna stað við Klukkuvelli 5.Eignin er skráð 104 fm skv. HMS en þar af er 7,8 fm geymsla.
Nánari lýsing:Rúmgóð forstofa með góðum fataskápum, flísar á gólfi.
Rúmgott hol.
Hvít eldhúsinnrétting, gott skápaplass, ofn í vinnuhæð, helluborð með háf yfir, innbyggð uppþvottavél. Flísar á milli efri og neðri skápa. Eyja í eldhúsi.
Björt stofa og borðstofa þar sem útgengt er á rúmgóðar suðvestur svalir.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðu skápaplássi. Nýtist sem barnaherbergi í dag.
Tvö barnaherbergi bæði með skáp.
Baðherbergi með innréttingu, vegghengdu salerni, baðkari með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús innan íbúðarinnar með innréttingu, flísar á gólfi.
Sér geymsla fyrir íbúðina er í kjallara ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Falleg og fjölskylduvæn eign á vinsælum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, grunnskóla, leikskóla, góð útivistarsvæði o.fl.
Nánari upplýsingar veita:
Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða glodis@hraunhamar.is
og Helgi Jón Harðarson sölustjóri í s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.is
Skoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.