Fasteignaleitin
Skráð 29. júní 2026

Baughús 4

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Grafarvogur-112
245.2 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
208.500.000 kr.
Fermetraverð
850.326 kr./m2
Fasteignamat
168.000.000 kr.
Brunabótamat
145.450.000 kr.
Mynd af Katrín Eliza Bernhöft
Katrín Eliza Bernhöft
Löggiltur fasteignasali
Garður
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2041068
Landnúmer
109750
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Nýlega búið að yfirfara og setja varmaskipti
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX kynnir í einkasölu: BAUGHÚS 4, 112 Reykjavík. Virkilega glæsilegt einbýlishús hannað af Kjartani Sveinssyni arkitekt.
Einstakt og afar glæsilegt einbýlishús á flottum stað með góðu útsýni og miklum möguleikum. Stórar og bjartar stofur með mikilli lofthæð að hluta. Fjögur svefnherbergi, tvö baðherbergi, rúmgott eldhús og þvottaherbergi. Tvöfaldur bílskúr með rafdrifnum hurðum og næg bílastæði. Stór og mikill garður er umhverfis húsið með palli og heitum potti. Glæsileiki og vel vandað til allra verka. Eigandi hússins er byggingameistari og sá sjálfur um að byggja húsið. Sami eigandi frá upphafi og hefur húsinu verið vel við haldið. Hér er hægt að segja með sanni að sjón er sögu ríkari. 

Baughús 4 er einbýlishús í rótgrónu hverfi. Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 245,2 fm, þar af er 47,5 fm bílskúr. Eignin er með fastanúmerið 204-1068 og selst ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðarréttindum. Undir öllu húsinu er mikið rými sem er ekki inn í fm tölu hússins. Það er skráð sem lagnarými en hefur góða lofthæð og býður því húsið upp á mikla möguleika.
 
  • SMELLTU HÉR og skoðaðu þessa eign í 3-D (Ekki er þörf á sérstöku forriti)

Nánari lýsing:
Gengið er inn í forstofu með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. Úr forstofu er bæði forstofuherbergi og gestasalerni.
Rúmgott forstofuherbergi með góðum gluggum. Forstofuherbergið var áður nýtt undir hárgreiðslustofu. Þar er búið að setja upp litla innréttingu.
Gestasalerni með salerni og innréttingu með handlaug.

Frá forstofu er gengið inn í rúmgott alrými hússins. Þar er gegnheilt eikarparket á gólfum.
Sjónvarpsstofa með arinn og flísum á gólfi. Þar er mikil lofthæð og falleg innbyggð lýsing.
Stofan og borðstofan er björt og falleg með góðum gluggum og miklu útsýni til fjalla. Þar er gegnheilt eikarparket á gólfum. Þaðan er útgegnt í garðinn og út á svalir sem snúa út á grasflötinn bakvið húsið.

Eldhúsið er rúmgott með svartri innréttingu frá KVIK og sérsmíðaðri innréttinguað hluta. Ísskápur og uppþvottavél eru innbyggð í innréttingunni. Span helluborð. Í eldhúsi er einnig borðkrókur. Tekk viður í borðplötum og sólbekkjum. Úr eldhúsinu er einnig fallegt útsýni til fjalla og sést vel til Esjunnar. Frá eldhúsi er aðgengi að þvottahúsi.
Þvottahúsið er vel skipulagt, með sérsmíðaðri innréttingu, hvítum efri skápum og flísum á gólfi. Þvottahúsið er rúmgott og er í dag einnig nýtt sem búr.Í þvottahúsinu er einnig möguleiki að hafa frysti og auka ísskáp eins og það er nýtt í dag. Frá þvottahúsi eru gluggar í tvær áttir og útgengt í garðinn.

Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og flísum á gólfi. Þaðan er útgengt í garðinn en búið er að setja lítinn viðarsólpall þar fyrir utan.
Baðherbergi með hornbaðkari, sturtu, upphengdu salerni og sérsmíðaðri innréttingu með góðu skápaplássi og handlaug.
Herbergi 3 með flísum á gólfi og góðum gluggum. Er í dag nýtt sem gestaherbergi.
Herbergi 4 með flísum á gólfi og góðu skápaplassi. Er í dag nýtt sem listaherbergi og vinnustofa.

Bílskúrinn er tvöfaldur, með flísum á gólfi og þar er önnur bílskúrshurðin rafknúin. Næg bílastæði fyrir framan bílskúrinn og meðfram skúrnum er svokallað hjólhýsastæði. Stimpluð steypa í bílaplaninu og er hún lögð meðfram húsinu að hluta báðu megin. Snjóbræðslukerfi er í þremur bílastæðum fyrir framan bílskúrana og upp að inngangi hússins. Bílskúrinn er mjög rúmgóður, með geymslulofti og með gluggum í tvær áttir. Undir bílskúrnum er jafn stórt rými sem er ekki inn í fermetratölu hússins en með góðri lofthæð. Það er skráð sem lagnarými en hefur verið nýtt sem vinnustofa. Þar væri möguleiki að setja bæði glugga og hurð til að bæta aðgengið og jafnvel útbúa þar stúdíóíbúð. 

Allar útidyra- og svalahurðar ásamt gluggum í húsinu eru úr tekki. Tekk er bæði harður og endingargóður viður sem þolir vel raka og íslenskt veðurfar. 
Neysluvatnslagnir voru nýlega teknar í gegn og sett upp varmadæla. Gólfhitakerfi er í stórum hluta hússins.

Garðurinn umhverfis húsið er afar glæsilegur. Að framanverðu er sólpallur með heitum potti. Þar er mikill og fallegur gróður í kring. Garðurinn að baka til er graslagður. Þar er einnig fallegur lítill geymsluskúr.

Stutt er í alla helstu þjónustu, Húsaskóli, leikskólinn Brekkuborg, íþróttahús og Grafarvogslaug eru í göngufæri. Verslunarkjarninn í Spönginni er í næsta nágrenni með allri sinni þjónustu, matvöruverslanir, veitingahús, bókasafn og ýmislegt fleira. Egilshöll er einnig í næsta nágrenni en þar er m.a. bíó, keilusalur, líkamsrækt, skautasvell, sjúkraþjálfun svo eitthvað sé nefnt. Stutt út á stofnbrautir og gott aðgengi að almenningssamgöngum.

Eign sem vert er að skoða!

Allar nánari upplýsingar veitir:
  • Katrín Eliza Bernhöft löggiltur fasteignasali s: 699-6617 eða á katrin@remax.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. REMAX bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
  • Stimpilgjald af kaupsamningi er af heildarfasteignamati - Einstaklingar 0,8% - Fyrstu kaupendur 0,4% - Lögaðilar 1,6%.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
  • Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunnar.
  • Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1990
47.5 m2
Fasteignanúmer
2041068
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
22.700.000 kr.

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Freyjugata 28
Skoða eignina Freyjugata 28
Freyjugata 28
101 Reykjavík
143.6 m2
Fjölbýlishús
624
1177 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Dvergaborgir 3
Opið hús:29. júní kl 18:00-18:30
Skoða eignina Dvergaborgir 3
Dvergaborgir 3
112 Reykjavík
86 m2
Fjölbýlishús
312
871 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7b (703)
Opið hús:01. júlí kl 12:30-13:00
19 501 Svalir.jpg
Eirhöfði 7b (703)
110 Reykjavík
156.9 m2
Fjölbýlishús
413
1147 þ.kr./m2
180.000.000 kr.
Skoða eignina Eirhöfði 7b (601)
Friðjón_vefur (11).jpg
Eirhöfði 7b (601)
110 Reykjavík
176.9 m2
Fjölbýlishús
413
1074 þ.kr./m2
190.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin