Sólvangsvegur 1 – Björt íbúð á efstu hæð með fallegu útsýni Um er að ræða afar bjarta íbúð á 5. hæð (efstu hæð) í snyrtilegu fjölbýlishúsi, ætluðu fyrir 60 ára og eldri. Í húsinu er lyfta og aðgengi að mötuneyti. Einnig er boðið upp á skipulagðar ferðir í verslun einu sinni í viku fyrir íbúa. Eignin er staðsett steinsnar frá miðbæ Hafnarfjarðar, þar sem öll helsta þjónusta er innan seilingar. Úr íbúðinni er glæsilegt útsýni og nýtur hún mikillar birtu.
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu og þaðan inn á rúmgott baðherbergi með góðri sturtuaðstöðu, innréttingu og þvottaaðstöðu. Frá forstofu tekur við bjart og opið alrými sem samanstendur af stofu og borðstofu. Eldhúsið er snyrtilegt og vel skipulagt, og innaf því er praktískt búr/geymsla. Svefnherbergið er rúmgott með góðum fataskápum. Á gangi er einnig stór og nytsamlegur skápur sem nýtist vel fyrir fatnað og aðra muni. Úr alrýminu er útgengt út á svalir með einstöku útsýni yfir tjörnina, miðbæ Hafnarfjarðar og út á sjó.
Hér er um að ræða fallega og bjarta eign sem vert er að skoða.
Nánari upplýsingar veitir: Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.