Virkilega vel staðsett, skipulögð og björt 2-3 herbergja íbúð á neðstu hæð í virðulegu húsi á neðri brekku við miðbæinn. Eignin er samtals 77 fm. en þar af er sér geymsla í sameignarými 6,7 fm.
Forstofa er með flísar á gólfi og opnu fatahengi. Hol fyrir framan forstofu er með parket á gólfi og þaðan er innangengt í sameignarrými. Hjónaherbergi er inn af holi. Þar er parket á gólfi og góðir fataskápar. Gengið er upp einn pall tvö þrep. Baðherbergi er á hægri hönd, það er flísalagt í hólf og gólf, innrétting í kringum vask, upphengt salerni, handklæðaofn, sturtuklefi og vélrænt útsog. Búið er að útbúa með léttum vegg og rennihurð annað svefnherbergi, þar er parket á gólfi. Stofa og eldhús er í opnu rými, þar er parket á gólfi. Borðstofa er í fallegu bogadregnu útskoti úr stofu og þar er útgengt út á timburverönd sem snýr til suðurs. Eldhús er með góðri L-laga innréttingu með flísar milli efri og neðri skápa og stæði fyrir ísskáp.
Þvottahús er sameiginilegt með miðhæðinni. Þar er stæði fyrir þvottavél og möguleiki á að vera með þurrkara við sameiginlegan bakdyrainngang, merktur 00-11 á teikningu.
Annað: **Eignin getur verið laus við kaupsamning** -Nýtt parket á stofu og eldhúsrými -Þak var nýlega endurnýjað og þakrennur og settur hitaþráður -Inntak fyrir rafmagn, frárennslisrör og vatnlagnir endurnýjaðar að húsi fyrir um 30 árum -Rafmagnstafla, tenglar og slökkvarar endurnýjaðir -Bílastæði fyrir framan inngang -Timburpallur sem snýr til suðurs -Ljósleiðari -Hellulagt einkabílastæði -Lóð er í óskiptri sameign -Hlutfallstala íbúðar í lóð og mannvirkjum er um 14%
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut). 2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali. 3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna). 4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.