Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Hlíðarvegur 28

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
118 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
93.000.000 kr.
Fermetraverð
788.136 kr./m2
Fasteignamat
82.450.000 kr.
Brunabótamat
62.700.000 kr.
Mynd af Þórdís Björk Davíðsdóttir
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1968
Jarðhæð af 3
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2062205
Landnúmer
114770
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Neysluv.lagnir endurn. 2024
Raflagnir
Endurn.af fyrri eigendum
Frárennslislagnir
Skólpt&Dren endurn út í brunn 2024
Gluggar / Gler
Glugg.mál.innan2020_Utan2024
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Hellulögð verönd - Sérafnotareitur
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
**  HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA  **
 
Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna: - NÝTT Í SÖLU - 
Fallega, rúmgóða og vel skipulagða 4ra herbergja íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi í suðurhlíðum Kópavogs þar sem allar íbúðir í húsinu eru með sér inngang. Eignin hefur fengið gott viðhald og töluverðar endurbætur hafa verið framkvæmdar á síðustu árum, meðal annars á baðherbergi, þvottahúsi, lögnum og gólfefnum. Skólp og dren voru endurnýjuð að fullu árið 2024 ásamt neysluvatnslögnum frá inntaki. Húsið var múrviðgert og málað að utan árið 2019.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 118,0 fm sem skiptist í íbúðarrými 118,0 fm en í eignaskiptasamningi eru skráðar tvær geymslur á eignina. Önnur er köld geymsla undir tröppum en hin er inna af sameign/hjólageymslu og er ca 5 fm.
 

  SMELLTU HÉR til að sækja öll gögn um eignina

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is

  SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum

  SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna

Framkvæmdir síðustu ára:
Fyrir tíð seljenda var búið að endurnýja rafmagn í allri íbúðinni og ný tafla sett í sameign. Seljendur vita þó ekki nákvæmlega hvenær það var gert.
2016 - Grindverk sett meðfram allri lóðinni 
2019 - Hús múrviðgert og málað að utan
2020 - Nýjar innihurðar (Harðviðarval). Ofnalagnir endurnýjaðar, settar niður í gólf og flotað yfir (voru utanáliggjandi). Nýir ofnar í öll svefnherbergi.
2020 - Ný gólfefni á allt nema baðherbergi og þvottahús (harðparket og flísar).
2020 - Allir gluggar málaðir að innan. Útihurð pússuð upp og máluð.
2020 - Rafmagnstengjum fjölgað í flestum herbergjum.
2024 - Allir gluggar grunnaðir og málaðir að utan.
2024 - Skólp og dren endurnýjað að fullu alla leið út í nýjan brunn.
2024 - Neysluvatnslagnir endurnýjaðar alla leið frá inntaki.
2024 - Baðherbergi endurnýjað að fullu og hiti settur í gólf.
2024 - Þvottahús endurnýjað, bætt við salerni, handlaug og innréttingu, settur upp handklæðaofn.
2025 - Frágangur á lóð eftir endurnýjun á skólp og dreni. Hellulagt plan fyrir framan, ruslatunnuskýli og malbikað hluta af bílastæði.
2025 - Undirlag þjappað og hellulagt upp á nýtt við útgang úr íbúð út í garð. Lagnir settar undir bílastæði, tilbúið til að láta draga í fyrir hleðslustöðvar.
-----
Innan íbúðar eru þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús með gestasalerni, eldhús, stofa og borðstofa í björtu opnu rými, rúmgóð forstofa og gangur með góðu rými fyrir skrifborð/vinnuaðstöðu.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Opin og rúmgóð með parketi á gólfi. Frá forstofu skiptist íbúðin á skemmtilegan hátt þannig að svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús eru til vinstri en eldhús, stofa og borðstofa til hægri. Þar sem forstofa og gangur mætast er gott rými sem hentar vel fyrir skrifborð eða litla vinnuaðstöðu.
Eldhús, stofa og borðstofa: Eru saman í rúmgóðu, opnu og björtu rými með gluggum til suðurs og vesturs. Parket er á gólfi.
Eldhús: Góð innrétting með flísum á milli efri og neðri skápa og tengi fyrir uppþvottavél. Eldhúseyja veitir gott vinnu- og geymslupláss, með góðum skúffum og rafmagnstengli á hlið.
Svefnherbergin eru þrjú.
Herbergi I – hjónaherbergi: Rúmgott með fataslá og parketi á gólfi.
Herbergi II: Mjög rúmgott herbergi með góðum fataskáp og parketi á gólfi. Fataskápurinn stendur ofan á parketinu.
Herbergi III: Minnsta svefnherbergi íbúðarinnar en þó í ágætri stærð, með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað að fullu. Þar er walk-in sturta, góð innrétting undir og við handlaug, upphengt salerni, gólfhiti og handklæðaofn. Opnanlegt fag er á glugga og hiti er í gólfi.
Þvottahús / gestasalerni: Rúmgott sameiginlegt rými þar sem salernisaðstöðu hefur verið bætt við þvottahúsið. Þar er hvít innrétting undir handlaug, upphengt salerni, handklæðaofn og flísar á gólfi. Opnanlegt fag er á glugga.
Garður og útisvæði: Útgengt er af herbergisgangi í sérlega skjólgóðan garð. Sérafnotareitur íbúðarinnar er hellulagður en garðurinn að öðru leyti í óskiptri sameign eigenda hússins.
Geymslur: Tvær geymslur fylgja eigninni til viðbótar við skráða fermetra íbúðar. Önnur er köld geymsla og hin er um 5 fm og staðsett inn af sameigninni en þar er einnig hjólageymsla.
Bílastæði: Næg bílastæði eru á lóðinni. Undir bílastæði hafa verið lagðar lagnir vegna hleðslustöðva og er undirbúið fyrir hleðslustöð fyrir hverja íbúð.
 
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 

- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleyðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.

 
Heimasíða RE/MAX
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
·      Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
·      Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 3.800 kr. af hverju skjali.
·      Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
·      Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/01/202049.000.000 kr.44.000.000 kr.118 m2372.881 kr.Já
27/12/201375.000.000 kr.672.200.000 kr.2946.3 m2228.150 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (40)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensásvegur 1 A - 708
Grensásvegur 1 A - 708
108 Reykjavík
115.4 m2
Fjölbýlishús
32
1386 þ.kr./m2
159.900.000 kr.
Skoða eignina Mjóahlíð 10
Diddi_vefur (39).jpg
Skoða eignina Mjóahlíð 10
Mjóahlíð 10
105 Reykjavík
103 m2
Fjölbýlishús
413
873 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35 (408)
Diddi_vefur (31).jpg
Hringhamar 35 (408)
221 Hafnarfjörður
119.4 m2
Fjölbýlishús
413
728 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35 (407)
Diddi_vefur (30).jpg
Hringhamar 35 (407)
221 Hafnarfjörður
99.9 m2
Fjölbýlishús
413
806 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin