Fasteignaleitin
Skráð 31. okt. 2026

Tjarnarstígur 2

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
332.7 m2
10 Herb.
8 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
199.500.000 kr.
Fermetraverð
599.639 kr./m2
Brunabótamat
72.920.000 kr.
Byggt 1935
Svalir
Fasteignanúmer
20685551
Húsgerð
Einbýlishús

Borg fasteignasala kynnir til sölu Helgafell við Tjarnarstíg 2 á Seltjarnarnesi. Fallegt  steinsteypt einbýlishús á tveimur hæðum ásamt sérstæðum bílskúr. Eignin stendur á gróinni hornlóð við Tjarnarstíg og Lambastaðabraut í rólegu og eftirsóttu íbúðahverfi.
Húsið var byggt árið 1935 eftir teikningum Þorleifs Eyjólfssonar og hefur haldið sínum fallega og sérstæða karakter í gegnum tíðina. Húsið er rúmgott og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, meðal annars fyrir stóra fjölskyldu.
Samkvæmt nýrri skráningartöflu, sem er til yfirferðar hjá viðeigandi yfirvöldum, er heildarstærð eignarinnar 332,7 fm, þar af er efri hæð 142,3 fm, neðri hæð 154,6 fm og sérstæður bílskúr 35,8 fm.



Nánari lýsing eignarinnar
Efri hæð – 142,3 fm
Á efri hæð eru tveir inngangar, forstofa, fjögur svefnherbergi, tvær samliggjandi stofur, eldhús og baðherbergi.
Forstofa: Forstofa með fatahengi.
Stofur: Tvær rúmgóðar og bjartar samliggjandi stofur. Úr annarri stofunni er gengið út á svalir og þaðan niður í fallegan og gróinn garð.
Eldhús: Eldhúsið hefur verið endurnýjað á vandaðan og smekklegan hátt. 
Svefnherbergi: Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni, þar af hjónaherbergi með fataskápum.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari, innréttingu, vegghengdu salerni og glugga. Flísar á gólfi og veggjum.
Gólfefni: Á hæðinni eru meðal annars fallegt gegnheilt fiskibeinaparket, dúkar, teppi og flísar.

Neðri hæð – 154,6 fm
Neðri hæðin er með sérinngangi og skiptist í hol, fjögur herbergi, eldhúsaðstöðu, baðherbergi, þvottahús, inntaksrými og geymslur. Lofthæð er um 2,2 metrar.
Herbergi: Fjögur herbergi eru á hæðinni sem bjóða upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika.
Eldhúsaðstaða: Eldhúsaðstaða er á hæðinni.
Baðherbergi: Baðherbergi með sturtuaðstöðu.
Þvottahús og geymslur: Þvottahús með aðgengi að inntaksrými og geymslu. Auk þess eru fleiri góð geymslurými á hæðinni.
Gólfefni: Parket, dúkar og máluð gólf.
Skipulag neðri hæðarinnar býður upp á ýmsa möguleika, meðal annars að útbúa séríbúð í hluta hennar, að fengnum nauðsynlegum leyfum og að uppfylltum viðeigandi kröfum.

Bílskúr – 35,8 fm
Sérstæður bílskúr byggður árið 1956 úr holsteini. Bílskúrinn er með hita, heitu og köldu vatni og rafdrifnum hurðaropnara. Bílastæði er við hlið bílskúrsins og einnig er möguleiki á að leggja minni bifreið fyrir framan hann.
Lóð og staðsetning
Húsið stendur á fallegri og gróinni hornlóð með grasflötum, trjám og fjölbreyttum gróðri. Úr húsinu er útsýni meðal annars til sjávar, Bláfjalla og til suðurs.
Staðsetning eignarinnar er góð í rólegu og rótgrónu íbúðahverfi á Seltjarnarnesi.
Um er að ræða fallegt einbýlishús með mikla möguleika, rúmgóðum vistarverum, allt að átta herbergjum, góðum geymslum og sérstæðum bílskúr. Eignin stendur á fallegri hornlóð. 

Nánari upplýsingar veita: 

Úlfar Þór Davíðsson löggiltur fasteignasali í síma: 788-9030/ ulfar@fastborg.is  
Börkur Hrafnsson löggiltur fasteignasali  í síma 892-4944,  borkur@fastborg.is

 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (4)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bugðutangi 2
Heitur pottur
AUKAÍBÚÐ
Skoða eignina Bugðutangi 2
Bugðutangi 2
270 Mosfellsbær
319,6 m2
Einbýlishús
726
532 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Hof Land
Heitur pottur
Skoða eignina Hof Land
Hof Land
604 Akureyri
318,8 m2
Einbýlishús
513
219 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarberg 28
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Hafnarberg 28
Hafnarberg 28
815 Þorlákshöfn
108,8 m2
Raðhús
312
612 þ.kr./m2
66.600.000 kr.
Skoða eignina Grenimelur 15
Opið hús:02. nóv. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Grenimelur 15
Grenimelur 15
107 Reykjavík
60,4 m2
Fjölbýlishús
211
992 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin