Lind fasteignasala og Krstján þórir Hauksson Löggiltur fasteignasali kynna: Glæsilega endurnýjuð þriggja herbergja íbúð á 2. hæð við Sólvallagötu 48 í Reykjavík. Eignin hefur verið endurnýjuð á vandaðan hátt, mikil lofthæð er í íbúðinni og öll rými afar rúmgóð. Úr stofu eru ca. 25 fm suður svalir með skjólvegg og heitum potti. Stæði fylgir.Forstofa er með parketi á gólfi, stór fataskápur með geymslurými.
Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum og mikilli lofthæð, innfelld lýsing í loftum.
Eldhús er opið inn í stofu með eldavélareyju og vandaðri lýsingu. Hvítar háglans innréttingar.
Hjónaherbergið er rúmgott með stórum innbyggðum fataskáp. Herbergið er með sérhannaðri lýsingu og útgengt á litlar svalir.
Innaf stofu er annað rúmgott
svefnherbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergið er afar rúmgott með ítölskum flísum á gólfi og veggjum frá Álfaborg, tæki frá Ísleifi Jónssyni. Lagnir fyrir sturtuhaus innfelld í veggi.
Þvottahús er innaf eldhúsi, stúkað af með rennihurð. Gott geymslupláss er í rýminu.
Gólfhiti er í allri íbúðinni. Parketið er frá Álfaborg. Allt rafmagn íbúðar var endurnýjað fyrir nokkrum árum.
Við hönnun íbúðarinnar var leitað til Hildigunnar Sverrisdóttur arkitekts og Holgeir Gíslason hjá Rafkaup hannaði lýsinguna.
Íbúðin á sér bílastæði í bakgarði.
Allar nánari upplýsingar veitir
Hrafn Valdísarson Löggiltur fasteignasali í síma 845-9888 eða hrafn@fastlind.is
Kristján Þórir Hauksson Löggiltur fasteignasali í síma 696-1122 eða kristjan@fastlind.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.