Guðný Ösp, lgf., s. 665-8909 og fasteignasalan TORG kynnir raðhús við Ólafsvelli 15 á Stokkseyri
Umrædd eign er staðsett fyrir miðju í fjögurra eininga raðhúsalengju, komið er inn í forstofu sem er á milli geymslu og andyris inn í eignina.
Alrými er bjart og opið með gólfsíðum gluggum í stofu, þaðan sem unnt er að ganga út í bakgarð eignarinnar sem snýr í suður.
Skv. fasteignayfirliti frá HMS er eignin skráð 102,8 m2 og þar af er geymsla 7,8 m2. Fasteignamat eignarinnar fyrir árið 2026 er kr. 55.800.000,-
Nánari lýsing:
Forstofa: flísar á gólfi.
Geymsla: samtals skráð 7,8 m2.
Anddyri: flísar á gólfi og fataskápur.
Stofa- og borðstofa: parket á gólfi, bjart og opið rými með gólfsíðum gluggum, útgengt í garð sem snýr í suður.
Eldhús: parket á gólfi, eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi og ofn í vinnu hæð.
Baðherbergi: flísar á gólfi, upphengt salerni og sturta. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara.
Herbergi I: parket á gólfi og fataskápur.
Herbergi II: parket á gólfi og fataskápar.
Nánari upplýsingar veitir Guðný Ösp Ragnarsdóttir, lgf., s. 665-8909 eða gudny@fstorg.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.