Fasteignaleitin
Skráð 19. maí 2025
Deila eign
Deila

SPÁNAREIGNIR - Dona Pepa

EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
198 m2
Verð
80.400.000 kr.
Fermetraverð
406.061 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
107040125
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG EINBÝLISHÚS ÁTVEIMUR HÆÐUM Á FRÁBÆRUM STAÐ* -*STUTT Í VERSLANIR OG ÞJÓNUSTU*
ÞÍN DRAUMAEIGN Á SPÁNI, ÞAR SEM SÓLIN SKÍN Á ALLA

Falleg, björt og vel hönnuð einbýlishús á tveimur hæðum með lokuðum einkagarði og einkasundlaug í DONA PEPA , um 30 mín akstur suður af Alicante. Þrjú svefnherbergi, þrjú baðherbergi, góð stofa, eldhús opið við borðstofu. Flott hönnun. Góð verönd  framan við húsið. Lokaður einkagarður með einkasundlaug. Góðar þaksvalir með glæsilegu rými.
Frábær staðsetning í göngufæri við verslanir og veitingastaði og hinn vinsæla "Laugaveg" í Ciudad Quesada.

Allar upplýsingar gefa Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. GSM 00354 893 2495. adalheidur@spanareignir.is, 
 Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is GSM 0034 615 112 869  og Karl Bernburg, viðskiptafræðingur. 00354 GSM 777 4277. karl@spanareignir.is.

Nánari lýsing:

Neðri hæð: Komið er inn í hol sem tengir saman rými hússins. Stofa, borðstofa og opið eldhús við borðstofu. Gott útgengi út á verönd og garðinn. Eldhúsið er fallega innréttað og tengist borðstofunni á skemmtilegan máta. Þvottahús.
Eitt svefnherbergi og baðherbergi.
Efri hæð: Tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi. Útgengi út á svalir og upp á þakverönd.

Frábær sér garður með einkasundlaug, góðri grillaðstöðu og sólarverönd.
Bílastæði inni á lokaðri lóð.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni, t.d.  La Marquesa, La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Einnig eru fleiri góðir golfvellir í næsta nágrenni, t.d. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin og Las Colinas.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Guardamar og ca. 15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.

Hér er um að ræða glæsilega hannaðar lúxuseignir á frábæru verði og vel staðsettar á hinu vinsæla Dona Pepa/Ciudad Quesada svæði. Einstakt tækifæri fyrir fólk sem vill njóta lífsins.

Verð miðað við gengi 1Evra=145ISK
555.000 evrur (ISK. 80.400.000) + 10% skattur og ca. 3% kostn. við kaupin.
Húsin eru til afhendingar í mars/apríl 2026.
Húsin eru afhent fullbúin fallegum húsgögnum og heimilistækjum sem eru innifalin í verðinu þannig að ekkert er annað en að flytja inn og byrja að njóta frá fyrsta degi.

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.
Bein kaup frá traustum og öruggum byggingaraðila með áratuga reynslu. Hafið samband og bókið einkaviðtal.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 13%.

Eiginleikar: sér garður, einkasundlaug, bílastæði, air con, ný eign,
Svæði: Costa Blanca, Ciudad Quesada, Dona Pepa,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Benijofar
SPÁNAREIGNIR - Benijofar
Spánn - Costa Blanca
225 m2
Einbýlishús
423
367 þ.kr./m2
82.600.000 kr.
Skoða eignina Álsvellir 10
Opið hús:10. sept. kl 18:00-18:30
Skoða eignina Álsvellir 10
Álsvellir 10
230 Reykjanesbær
150 m2
Raðhús
514
533 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Stekkjarholt 15
Bílskúr
Skoða eignina Stekkjarholt 15
Stekkjarholt 15
300 Akranes
180.3 m2
Hæð
514
427 þ.kr./m2
76.900.000 kr.
Skoða eignina Bárugata 2
Bílskúr
Skoða eignina Bárugata 2
Bárugata 2
815 Þorlákshöfn
142.9 m2
Raðhús
312
563 þ.kr./m2
80.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin