Mikið endurnýjuð, 5 herbergja íbúð sem er skipt í tvær íbúðir í dag. Frábær staðsetning í miðbæ Reykjavíkur við Stórholt 17, Þingholtinu.Góðar leigutekjur, 3ja herbergja íbúð á efri hæð og 2ja herbergja íbúð á jarðhæð. Vel hægt að opna á milli hæða og gera að einni íbúð.
* Útleigueining með góðum tekjum.
* Endurnýjuð eldhús, baðherbergi og gólfefni.
* Bílskúrsréttur og bílastæði við húsið.
* Húsið hefur fengið mikla endurnýjun að innan og utan. Viðhald á húsinu síðastliðin ár tiltelur ma. :2007 voru frárennslislagnir endurnýjað frá húsi út í götu, og settur brunnur.
2007-2011 voru eldhús og baðherbergi endurnýjuð og hluti gólfefna.
2010-2011 voru heita- og kaldavatnslagnir endurnýjaðar og hiti settur í gólf.
2014 var húsið múrviðgert og steinað ásamt lagfæring á þakkanti, þakrennur endurnýjaðar, gluggar yfirfarnir og endurnýjaðir eftir þörf.
2026 var þakjárn endurnýjað. Sperrur athugaðar og metnar í góðu ástandi. Gluggar málaðir að utan.
Nánari upplýsingar veita:Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð samkv. HMS er 121,00 m2. Þar af er 68,8 fm íbúð á 1.hæð, 49,4 fm innréttað sem íbúð í kjallara og 2,8 fm geymsla.
Íbúð á 1. hæð skiptist í hol, stofu, eldhús, baðherbergi, 2 svefnherbergi og geymsluskáp.Það er snjóbræðsla í tröppunum.
Hol er flísalagt með geymsluskáp, þar sem áður var gengið niður í kjallara. Hægt að opna aftur.
Stofa er með parket á gólfi.
Eldhús er með gólfhita og flísum á gólfi, L-laga innrétting með helluborði, viftu, bakarofn ásamt borðkrók og uppþvottavél.
Svefnherbergi 1 er með parket á gólfi og var áður borðstofa, auðvelt að opna aftur á milli.
Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataherbergi.
Baðherbergi er flísalagt með gólfhita, sturtu, upphengdu wc, innréttingu og tengi fyrir þvottavél.
Íbúð á jarðhæð skiptist í hol, stofu/ eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymsluskáp.Hol er flísalagt með geymsluskáp.
Stofa /
eldhús er í opnu rými með flísum á gólfi. Innrétting með tækjum.
Svefnherbergi er flísalagt með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt með gólfhita, upphengdu wc, innréttingu, tengi fyrir þvottavél og baðkari með sturtu.
Gólfhiti er í allri íbúðinni.
Sérgeymsla er í sameign undir stiga, skráð 2,8 m2.
Bílskúrsréttur fylgir þessari eign samkv. eignaskiptayfirlýsingu, ásamt bílastæði þar við.
Afar vel staðsetta eign miðsvæðis í Reykjavík í vinsælu hverfi, afar stutt að sækja ýmsa verslun, menningu, skóla, þjónustu osfrv. Fallegar gönguleiðir í Öskjudalshlíð sem og Klambratúni svo fátt eitt sé nefnt.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.