Fasteignaleitin
Skráð 29. júlí 2025
Deila eign
Deila

Valshlíð 5

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
121.2 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
133.900.000 kr.
Fermetraverð
1.104.785 kr./m2
Fasteignamat
42.750.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
MM
Maximo Max Agueda
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Fasteignanúmer
2532692
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Íbúð 411 - Verð 133.9M

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 5 - Íbúð 411. Íbúðin er staðsett í fyrsta áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar sumarið 2025.

Sölusíða eignarinnar

Glæsileg og vönduð 4ja herbergja íbúð á 4. hæð í Hlíðarhorni. Birt stærð er 121,2 fm þar af 9,3 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús með eyju og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, gang, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með hágæða sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mói 2.

Nánari lýsing: Í anddyri eru góðir fataskápar. Gengið er úr anddyri inn gang inn í rúmgott alrými, eldhús með eyju og stofu/borðstofu með gólfsíðum gluggum, óhindruðu útsýni og útgengi á rúmgóðar suður svalir. Taupe grá eldhúsinnrétting með mattri áferð, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Öll eldhúsraftæki af hæsta gæðaflokki. Innbyggður ísskápur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum skápum. Svefnherbergi með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, taupe grá innrétting með mattri áferð og speglaskápur með lýsingu. Innbyggð blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu, gráum steinflísum og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara er í vinnuhæð í innréttingu. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0060. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Fyrirvarar:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5 (326)
Bílastæði
Opið hús:05. ágúst kl 16:30-17:00
Fálkahlíð 5 (326)
102 Reykjavík
128.4 m2
Fjölbýlishús
413
949 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Hlíðarfótur 19
Bílskúr
Bílastæði
Opið hús:05. ágúst kl 16:30-17:00
Hlíðarfótur 19
102 Reykjavík
144.7 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 5 (421)
Bílastæði
Opið hús:05. ágúst kl 16:30-17:00
Fálkahlíð 5 (421)
102 Reykjavík
123.3 m2
Fjölbýlishús
413
1005 þ.kr./m2
123.900.000 kr.
Skoða eignina Fálkahlíð 4
Bílskúr
Bílastæði
Skoða eignina Fálkahlíð 4
Fálkahlíð 4
102 Reykjavík
143.7 m2
Fjölbýlishús
322
904 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin