Ragnhildur Finnbogadóttir & Hannes Steindórsson, kynna til sölu:
Nýlegt, bjart & vel skipulagt fjögurra herbergja, 88,4 fm raðhús á einni hæð með timburverönd við Stuðlaskarð 6B í Hafnarfirði.
Húsið er viðhaldslítið, klætt að utan með lerkiklæðningu. Gluggar með þreföldu gleri.
Fasteignamat fyrir árið 2026 er 78.300.000 kr.
Eignin skiptist í:
Forstofu, þrjú svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: er með flísalögðu gólfi.
Eldhús: með hvítri innréttingu með góðu skápaplássi. Innbyggður ísskápur, uppþvottavél, bakaraofn og spanhelluborð.
-Eldhús, stofa og borðstofa tengjast í opnu rými og eru með harðparketi á gólfi.
Stofa: björt, með harðparketi á gólfi.
-Útgengt er úr rýminu út á viðar verönd.
Hjónaherbergi: með harðparketi á gólfi og innbyggðum fataskápum.
-Útgengt er úr rýminu út í bakgarð, þar sem búið er að leggja lagnir fyrir heitum potti.
Svefnherbergi 1: með harðparketi á gólfi og innbyggðum fataskápum.
Svefnherbergi 2: með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi: flísalagt gólf og veggir að hluta. Hvít, upphengd innrétting með vaski og speglaskáp fyrir ofan. "Walk-in" sturta með glerþili, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús: flísalagt gólf með gólfhita. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara og vinnuborð með skolvaski.
Búið er að leggja rafmagn fyrir rafhleðslustöð og getur hún fylgt með.
Hjóla- og vagnageymsla er sameiginleg.
Allar nánari upplýsingar veita:
Ragnhildur Finnbogadóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 772-2791 eða adda@fastlind.is
Hannes Steindórsson, löggiltur fasteignasali, í síma 699-5008 eða hannes@fastlind.is
Kostnaður kaupanda vegna kaupa: Stimpilgjald kaupsamnings einstaklinga er 0,8% og lögaðila 1,6% af fasteignamati eignar. Lántökugjald getur verið breytilegt eftir lánastofnunum, oftast 1%. Þinglýsingargjald er 2.700 fyrir hvert skjal. Þjónustu- og umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Lind fasteignasala bendir öllum sem hugsa sér að kaupa, að kynna sér vel ástand fasteignarinnar við skoðun fyrir tilboðsgerð og leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf þykir.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Ljósmyndir