Fasteignaleitin
Skráð 22. sept. 2026

Neðra-apavatn Hléskógar

SumarhúsSuðurland/Selfoss-805
112.8 m2
6 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
92.900.000 kr.
Fermetraverð
823.582 kr./m2
Fasteignamat
52.950.000 kr.
Brunabótamat
65.250.000 kr.
Mynd af Svanþór Einarsson
Svanþór Einarsson
Byggt 1968
Garður
Pallur
Sérinng.
Fasteignanúmer
2207914
Landnúmer
169316
Húsgerð
Sumarhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ástand ekki vitað
Raflagnir
Ástand ekki vitað
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Skipt um gluggar 2020/tvöfalt gler
Þak
Komið að viðhaldi
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Timburverönd
Upphitun
Hitakútur, varmadæla, rafmagn
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Afsal, 447-A-000121/2020 - eignarheimild seljanda. Kaupsamningur, 447-A-003589/2019. Afsal, 433-A-00XXXIX-391 - Eigendagluggi lagfærður 7. september 2020, m.v.t. 27. gr. þinglýsingalaga nr. 39/1978. Fyrir það tímamark voru allir skráðir með 0%. Lagfært á grundvelli þinglýstra heimildarskjala - Forkaupsréttur: ,,Ég áskil mér og síðari eigendum Neðra Apavatns forkaupsrétt að hinu selda landi, ef það verður síðar falt, hvort sem er í einu lagi eða að hluta.". Yfirlýsing, 433-X-004743/2004 - Samningur landeigenda um sameiginlegan veiðirétt, viðhald sameignar, takmarkanir á byggingarétti og forkaupsréttarákvæði: Sjá skjal að öðru leyti.. Yfirlýsing, 433-X-004744/2004 - Viðauki við samning fylgir skjali X4743/2004.
Komið að viðhaldi á þaki aðalhúss. Þak á geymsluskúr er orðið lélegt.
Gjöld: Fasteignagjöld 2026 eru samtals XX kr. Brunatrygging 2026-2027 er 77.230 kr. Félagsgjald í sumarhúsafélag er XX kr. 
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög fallegt sumarhús ásamt gestahúsi á 23.000 m2 eignarlóð á grónum stað við Neðra-Apavatn í Grímsnes- og Grafningshreppi. Eignin er kölluð Hléskógar. Lóðin er skógi vaxin útivistarparadís og liggur að Apavatni sunnanverðu. Eigninni fylgir jafnframt 1/9 af 26,5 hektara lóð í óskiptri sameign (F2344955). Eigninni fylgir því samtals land sem samsvarar ríflega 52.000 m², þar af eru 23.000 m² séreignarlóð og um 29.000 m² hlutdeild í óskiptu landi.
Eignin er samtals skráð 112,8 m2, þar af sumarhús 83,8 m2 og gestahús 29 m2. Sumarhúsið skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Gestahús skiptist í tvö svefnherbergi og baðherbergi. Sér inngönguhurð er í bæði svefnherbergi. Varmadæla er í alrými aðalhúss til upphitunar auk rafmagnsofna í flestum rýmum. Hitakútur fyrir neysluvatn er bæði í aðalhúsi og gestahúsi. Sér kaldavatnsborhola fylgir eigninni. Góð timburverönd er við bæði hús. Á lóðinni standur geymsluskúr og reykhús. Fallegar gönguleiðir eru á lóðinni og við vatnið er lítil bryggja, aðeins nokkrum skrefum frá aðalhúsi. Frábær staðsetning, stutt frá mörgum af helstu náttúruperlum Suðurlands auk verslunar og þjónustu á Laugarvatni. Að lóðinni liggur góður malarvegur frá Laugarvatnsvegi. Lokað símahlið er til að komast inn á svæðið. Veiði í vatninu fylgir sem og í Vatnsholtslæk. Innbú utan persónulegra muna getur fylgt með í kaupunum. Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Helstu framkvæmdir samkvæmt seljanda: Vatnslagnir endurnýjaðar 2019. Pallur byggður 2020. Ný varmadæla 2020. Hús klætt að utan 2020. Skipt um alla glugga 2020. Nýtt eldhús og tæki 2020. Nýtt parket 2020. Bryggja byggð 2021. Reykhús byggt 2022. Ný rotþró fyrir aðalhús 2024. Ný rotþró fyrir gestahús 2024. Gestahús byggt 2023-2025.

** Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent **

Nánari lýsing:
- Aðalhús
Forstofa 
er með parketi á gólfi, fataskáp og fatahengi.
Stofa/borðstofa er stór og björt, opin við eldhús, með parketi á gólfi og arni. Útgengt er á timburverönd úr stofu.
Eldhús er með parketi á gólfi og fallegri U-laga hvítri innréttingu með bakaraofni, helluborði, háfi og uppþvottavél. Ísskápur stendur við hlið innréttingar. 
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 2 er rúmgott með parketi á gólfi.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi.
Baðherbergi er með innréttingu með handlaug, gólfsalerni, sturtuklefa og handklæðaofni. Opnanlegir gluggi er í rýminu.
- Gestahús
Svefnherbergi 1 er rúmgott með parketi á gólfi. Sér inngangur er í rýmið.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi. Sér inngangur er í rýmið.
Baðherbergi er milli svefnherbergja og er innangengt í bæði herbergin. Parket er á gólfi, innrétting með handlaug, upphengt salerni og sturtuklefi. Þvottavél og opnanlegur gluggi eru í rýminu.

Geymsluskúr og reykhús standa á lóð við sumarhúsið. Bryggja er við vatnið, stutt frá aðalhúsi.

Verð kr. 92.900.000,- 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
16/10/201927.750.000 kr.24.000.000 kr.83.8 m2286.396 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2025
29 m2
Fasteignanúmer
2207914
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
17.650.000 kr.

Myndir (57)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Grensás 28
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 28
Grensás 28
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
413
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Grensás 26
Á einni hæð
Skoða eignina Grensás 26
Grensás 26
805 Selfoss
102 m2
Sumarhús
413
489 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Ártún 30
Á einni hæð
Skoða eignina Ártún 30
Ártún 30
806 Selfoss
116.5 m2
Sumarhús
413
676 þ.kr./m2
78.800.000 kr.
Skoða eignina Norðurbyggð 22A
Á einni hæð
Norðurbyggð 22A
815 Þorlákshöfn
112.5 m2
Parhús
413
600 þ.kr./m2
67.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin