Helgafell fasteignasala og Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali kynna bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með stórri timburverönd og bílskúr í Gullengi 11 í Grafarvogi.Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Nánari lýsing:Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. Útgengi á stóra suður/austur timburverönd. Tvær útigeymslur, önnur með rafmagni.
Eldhús með innréttingu, borðkrók og parketi á gólfi.
Svefnherbergi með fataskápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi með innréttingu, baðkari með sturtu aðstöðu, opnanlegum glugga og flísum á gólfi.
Þvottahús með hillum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi.
Bílskúr er 31,2fm með millilofti og flísum á gólfi. 3ja fasa rafmagn og vaskur.
Sér geymsla í hjóla- og vagnageymslu fylgir með.
Stór og góður sameiginlegur garður.
Fín eign á góðum stað í Grafarvoginum. Stutt er í alla helstu þjónustu, skóli, leikskóli, sundlaug og íþróttamiðstöð í göngufæri ásamt mörgum leikvöllum í kring. Einnig eru margar fallegar gönguleiðir í kring. Smelltu hér til að fá sent söluyfirlit yfir eignina Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:Linda Björk Ingvadóttir löggiltur fasteignasali
s. 868 7048 / linda@helgafellfasteignasala.is