Fasteignaleitin
Opið hús:27. maí kl 17:00-17:30
Skráð 21. maí 2026

Bólstaðarhlíð 31

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
89.3 m2
5 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
98.900.000 kr.
Fermetraverð
1.107.503 kr./m2
Fasteignamat
75.900.000 kr.
Brunabótamat
44.900.000 kr.
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2013161
Landnúmer
103600
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Í endurnýjun
Raflagnir
Endurnýjað, sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljanda
Frárennslislagnir
Ástand óþekkt
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta, sjá nánar í ástandsyfirlýsingu seljanda
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já til suðurs
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Rúmgóð og björt 5 herbergja risíbúð með góðu útsýni í Hlíðunum 
Tinna Bryde löggiltur fasteignasali og Háborg fasteignasala kynna einstaka 5 herbergja risíbúð með góðu útsýni að Bólstaðarhlíð 31 í vinsælu Hlíðahverfi Reykjavíkur. Íbúðin er björt með góðu skipulagi og gluggar eru í þrjár áttir. Íbúðin er skráð 89,3 fm samkvæmt HMS en einnig fylgir eigninni óskráð rými á háalofti 12,3 fm (það sem mælist yfir 180 cm). Golfflötur 3 hæðar er 121,5 fermetrar og því er íbúðin í raun stærri en skráð flatarmál gefur til kynna en fermetrar undir súð nýtast einstaklega vel.

-  Rúmgóð og sjarmerandi risíbúð
-  Svalir til suðurs
-  3 svefnherbergi og 2 stofur
-  Rúmgott geymsluloft yfir allri íbúðinni
-  Frábær staðsetning í Hlíðum


Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Íbúðin er skráð 89,3 fm samkvæmt HMS.
Nánari lýsing:
Stofa: Björt og rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útgengi á svalir til suðurs. Fallegt og hlýlegt rými með miklum sjarma.
Stofa II: Þægilegt rými sem nýtist vel sem sjónvarpshol eða setustofa.
Eldhús: Rúmgott eldhús með góðu skápaplássi og borðkrók. Geymslubúr er innaf eldhúsi. 
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi með fallegum grænum fataskápum sem gefa rýminu hlýlegt og persónulegt yfirbragð.
Herbergi II: Gott herbergi sem er að hluta til undir súð þar sem gólfflötur nýtist mjög vel.
Herbergi III: Herbergi með parketi á gólfi.
Baðherbergi: Baðherbergi með baðkari, handlaug og salerni.
Svalir: Suðursvalir sem njóta sólar vel yfir daginn.
Geymsluloft: Risloft er yfir allri íbúðinni með 2 m lofthæð í miðju. Rýmið er óskráð í fermetratölu eignarinnar en mælist 12,3 fm (það sem er yfir 180 cm). Auk þess er töluvert nýtanlegt rými undir súð.

Athugið að núverandi nýting íbúðarinnar samræmist ekki teikningum: það sem á teikningu er skráð sem geymsla er nú eldhús, eldhús á teikningu er nú barnaherbergi, og borðstofa á teikningu er einnig barnaherbergi. Sambærilegt skipulag er á öðrum íbúðum í húsinu. 

Viðhald: Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina. Svalarhurð og gluggar sunnanmegin hafa verið endurnýjaðir; aðrir gluggar yfirfarnir og gler endurnýjað að hluta. Rafmagn innan íbúðar er allt endurnýjað og ný rafmagnstafla. Nýr þrýstijafnari fyrir íbúðina er í kjallara. Framkvæmdir standa yfir við endurnýjun kaldavatnslagna í húsinu.
Staðsetning: Bólstaðarhlíð 31 er staðsett í einu eftirsóttasta hverfi Reykjavíkur þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, miðbæinn, Öskjuhlíð og fjölbreytt útivistarsvæði. Hlíðar eru þekktar fyrir rólegt og gróið hverfi með einstökum sjarma. Göngustígur er við húsið sem liggur að Háteigsskóla og útivistarsvæðið Klambratún er í næsta nágrenni. Um 7 mínútna gangur er í Kringluna. Bólstaðarhlíðin sjálf er einstaklega falleg og breið gata með nægum bílastæðum. Eignin hentar einstaklega vel fjölskyldum — Ísaksskóli og leikskólinn Stakkaborg eru í sömu götu og ekki er langt í menntaskóla.

Nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde löggiltur fasteignasali í síma 660-5532 eða tinna@haborg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (23)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Kolagata 1
_6__7868.jpg
Skoða eignina Kolagata 1
Kolagata 1
101 Reykjavík
125.1 m2
Fjölbýlishús
423
1038 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 35, Íb. 408
Bílastæði
Hringhamar 35, Íb. 408
221 Hafnarfjörður
119.4 m2
Fjölbýlishús
413
728 þ.kr./m2
86.900.000 kr.
Skoða eignina Hringhamar 37, Íb. 501
Bílastæði
Hringhamar 37, Íb. 501
221 Hafnarfjörður
83.8 m2
Fjölbýlishús
312
895 þ.kr./m2
75.000.000 kr.
Skoða eignina Hulduholt 11
Skoða eignina Hulduholt 11
Hulduholt 11
603 Akureyri
150.7 m2
Raðhús
523
762 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin