Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Rauðalæk 28
Falleg íbúð á fyrstu hæð með bílskúr í botnlangagötu á þessum einstaklega skemmtilega stað í Reykjavík. Eignin er skráð 158,2 m² skv. fasteigaskrá og þar af er bílskúrinn 22,9 m². Húsið er steinsteypt og hefur hlotið gott viðhald í gegnum árin.
Nánari lýsing íbúð: Forstofa: Sérinngangur inn í flísalagða forstofu. Úr forstofu er gengið í hol, eitt herbergi og niður í kjallara hússins. Hol: Er mjög rúmgott og parketlagt og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Stofa / borðstofa: Björt og hugguleg parketlögð rými, að hálfu aðskilin. Úr öðru rýminu er gengið út á skjólgóðar svalir. Eldhús: Rúmgott rými með korki á gólfi. Ágæt eldri innrétting og gott pláss fyrir borðkrók. Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðum glugga, útgengt á litlar svalir. Stórir skápar með rennihurðum þekja einn vegg. Herbergi 2: Er einnig mjög rúmgott og bjart, dúkur á gólfi. Herbergi 3: Ágætt herbergi með dúk á gólfi. Gengið er í þetta herbergi úr forstofunni. Baðherbergi: Flísalagt gólf og hluti veggja. Baðkar með sturtu og eldri innrétting.
Kjallari sameign: Gengið er steyptan stiga úr forstofunni niður í mjög snyrtilegan kjallara sem er sameign hússins. Þvottaherbergin eru tvö, mjög rúmgóð rými og tilheyrir hvert um sig tveim íbúðum Got pláss fyrir vélar og einnig snúrur. Þessari íbúð fylgja tvær sérgeymslur í kjallara. Önnur hefðbundin, en hin köld geymsla (búr), samtals skráð 9 m². Einnig er í kjallaranum sameiginlegt þurrkherbergi.
Bílskúr: Er sambyggður við húsið. Ágæt bílskúrshurð, steypt gólf, heitt og kalt vatn og ágætt vinnuborð með neðri skápum. Garðurinn er gróinn, einstaklega fallegur og vel viðhaldinn. Þar má finna borð og stóla, útisnúrur og trampólín sem allt eru sameign íbúa hússins.
Um er að ræða skemmtilega og heillandi íbúð á frábærum stað í borginni. Stutt í Laugardalinn og allt sem þar er að finna. Einnig stutt í alla grunnþjónustu, skóla, leikskóla, o.s.frv.
Samþykkt hefur verið að skipta um járn á þaki á norðurhlið hússins ásamt því að fjarlægja efsta hluta skorsteins og lagfæra þakkant. Þak á suðurhlið verður hreinsað og málað.
Gallar
Einstöku sinnum kemur móða milli glerja á einni rúðu í herbergi 3.
Kvöð / kvaðir
Athygli er vakin á samkomulagi eigenda hússins frá 1997. Þinglýst skjal nr. 411-A-020699/1997. Þar segir að eigendur skuli sjálfir annast og kosta allt viðhald og endurnýjun glugga á eigin íbúð og bílskúr. Þetta á við gluggagrindur, pósta, laus fög og gler, jafnt innan dyra sem utan. Skjal þetta mun liggja frammi við tilboðsgerð, kaupsamning og aðra skjalavinnslu við sölu eignarinnar.
Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna Rauðalæk 28
Falleg íbúð á fyrstu hæð með bílskúr í botnlangagötu á þessum einstaklega skemmtilega stað í Reykjavík. Eignin er skráð 158,2 m² skv. fasteigaskrá og þar af er bílskúrinn 22,9 m². Húsið er steinsteypt og hefur hlotið gott viðhald í gegnum árin.
Nánari lýsing íbúð: Forstofa: Sérinngangur inn í flísalagða forstofu. Úr forstofu er gengið í hol, eitt herbergi og niður í kjallara hússins. Hol: Er mjög rúmgott og parketlagt og þaðan er gengið í önnur rými íbúðarinnar. Stofa / borðstofa: Björt og hugguleg parketlögð rými, að hálfu aðskilin. Úr öðru rýminu er gengið út á skjólgóðar svalir. Eldhús: Rúmgott rými með korki á gólfi. Ágæt eldri innrétting og gott pláss fyrir borðkrók. Hjónaherbergi: Mjög rúmgott með góðum glugga, útgengt á litlar svalir. Stórir skápar með rennihurðum þekja einn vegg. Herbergi 2: Er einnig mjög rúmgott og bjart, dúkur á gólfi. Herbergi 3: Ágætt herbergi með dúk á gólfi. Gengið er í þetta herbergi úr forstofunni. Baðherbergi: Flísalagt gólf og hluti veggja. Baðkar með sturtu og eldri innrétting.
Kjallari sameign: Gengið er steyptan stiga úr forstofunni niður í mjög snyrtilegan kjallara sem er sameign hússins. Þvottaherbergin eru tvö, mjög rúmgóð rými og tilheyrir hvert um sig tveim íbúðum Got pláss fyrir vélar og einnig snúrur. Þessari íbúð fylgja tvær sérgeymslur í kjallara. Önnur hefðbundin, en hin köld geymsla (búr), samtals skráð 9 m². Einnig er í kjallaranum sameiginlegt þurrkherbergi.
Bílskúr: Er sambyggður við húsið. Ágæt bílskúrshurð, steypt gólf, heitt og kalt vatn og ágætt vinnuborð með neðri skápum. Garðurinn er gróinn, einstaklega fallegur og vel viðhaldinn. Þar má finna borð og stóla, útisnúrur og trampólín sem allt eru sameign íbúa hússins.
Um er að ræða skemmtilega og heillandi íbúð á frábærum stað í borginni. Stutt í Laugardalinn og allt sem þar er að finna. Einnig stutt í alla grunnþjónustu, skóla, leikskóla, o.s.frv.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.