Miklaborg kynnir:
Vel skipulagðar og vandaðar tveggja til fimm herbergja íbúðir á frábærum útsýnisstað í nýju hverfi við Ártúnshöfðann. Flestar íbúðir með stæði í bílgeymslu. Vandaðar innréttingar frá Voke 3 og steinn á borðum. Sérstæð loftræsting í öllu íbúðum sem eykur loftgæði og takmarkar ryk, dregur úr rakamyndun og minnkar frjókorn í loftinu. Sérverk ehf, traustur byggingaverktaki í 35 ár.
Nánari upplýsingar veitir Íris Arna, löggiltur fasteignasali í síma 7700500 eða iris@miklaborg.is
Íbúð 101: Góð 3ja herbergja íbúð á 1.hæð með 20 fm verönd í vestur ásamt stæði í bílgeymslu. Íbúðin er skráð 89 fm, þar af geymsla 8,9 fm. Komið inn í anddyri með skáp. Eldhús er með vandaðri innréttingu, eldunareyja, undirlímdur og steinn á öllum borðum. Vönduð tæki frá Ormsson. Eldhús skiptir upp stofu og borðstofu. Baðherbergið er með sturtu, góð innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Steinn á borðplötu og undirlímdur vaskur. Eignin er með sérstæðri loftræstingu sem eykur loftgæði og dregur úr rakamyndun. Eignin afhendist fullbúinn án megin gólfefna.
Allar nánari upplýsingar veita:
Íris Arna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Svan Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Steinhöfði 2-4 er 22 íbúðar hús með tveimur stigagöngum og eru flestar íbúðir með stæði í bílgeymslu. Alls eru 141 íbúð á lóðinni í fjórum húsum. Húsið er teiknað af Ask arkitektum og var við hönnun húsins haft að leiðarljósi að gera íbúðirnar bjartar og vel skipulagðar. Fallegur inngarður er sunnanmegin við húsin og stórbrotið útsýni úr flestum íbúðum við Steinhöfða og Eirhöfað 1a og 1b sem kemur í sölu síðar.
Borgarhöfðinn er stærsta uppbyggingasvæði í Reykjavík og verða þar reistir 3 skólar ásamt verslun og þjónustu. Hverfið er mjög miðsvæðis og stutt í helstu stofnanir og þjónustu.
Nánari upplýsingar um svæðið er hægt að sjá á heimasíðu um Borgarhöfðann. www.borgarhofdi.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
109 | 76 | 52,7 | ||
110 | 93,8 | 88,9 | ||
110 | 70,9 | 67,9 | ||
110 | 89 | 81,9 | ||
110 | 88,7 | 84,9 | ||
110 | 88,7 | 84,9 |