ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu glæsilegt 3ja herbergja 96,7 fm parhús við Lækjamót 25 í Sandgerði. Eignin hefur rúmgóðan skjólgóðan pall í suður og vesturátt með heitum potti.
Nánari upplýsingar veitir:
Elín Frímannsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur elin@allt.is.
Í forstofu eru flísar á gólfi, góður skápur og millihurð með gleri sem skilur að forstofu og eldhús.
Eldhúsið er parketlagt og búið góðri innréttingu með helluborði, ofni og viftu.
Stofan er einnig parketlögð og með útgengi út á verönd.
Svefnherbergin eru parketlögð og innaf hjónaherbergi er rúmgott fataherbergi.
Baðherbergið er flísalagt á gólfi og veggjum og þar er upphengt salerni, baðkar og walk-in sturta.
Þvottahús er flísalagt og með fínni innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð.
**Hellulögð innkeyrsla
**Timburverönd með heitum potti
**Hjólageymsla á palli
**Gott geymsluloft yfir öllu húsinu
Vertu tilbúin(n) þegar rétta eignin birtist – skráðu eignina þín í dag og tryggðu þér forskotið.ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 62, 230 Reykjanesbæ - Reykjavíkurveg 66, 220 Hafnarfirði
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 69.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.